Tvö herskip bandaríska sjóhersins eru í Jökulfjörðum: skipin Hos Red Rock og Hos Red Dawn.
Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni hafa þau leyfi stjórnvalda til hafnarkomu og til að sækja þjónustu hingað til lands.
Í svari við fyrirspurn fréttastofu segir að skipin starfi utan íslenskrar efnahagslögsögu og af þeim sökum sé þess ekki krafist að þau hafi rannsóknarleyfi eða upplýsi nánar um verkefni sín.
Á meðan þau eru í íslenskri landhelgi sé þeim skylt að vera í samskiptum við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar.