Um helgina var greint frá því að Ung vinstri græn (UVG) hefði kosið sér nýja forystu.
Hinn 26 ára Ari Orrason var kjörinn formaður en í þingkosningum 2024 skipaði hann 2. sæti á lista Sósíalistaflokksins í Norðausturkjördæmi. Elvar Freyr Fossdal Sigfússon, sem er einnig nýr í stjórn UVG, skipaði 15. sæti á sama lista flokksins það ár.
Elísabet Freyja Úlfarsdóttir var árið 2021 í 17. sæti á lista Sósíalistaflokksins í Suðvesturkjördæmi. Eini maðurinn í stjórn UVG sem hefur ekki skipað sæti á lista Sósíalistaflokksins er Viktor Árnason, en hann skipaði 36. sæti á lista Vinstrisins í sveitarstjórnarkosningum í maí.
Hvað kemur til að svona margir fyrrum Sósíalistar séu nú komnir í stjórn VG?
„Ég get nú svarað fyrir Elísabetu,“ svarar Ari, nýr formaður UVG, í samtali við Vísi, en hvað okkur Elvar varðar var þetta aðallega vegna þess að starfið [þ.e. starf Sósíalistaflokksins] lagðist af úti á landi,“
Því hafi þeir Ari og Elvar, sem báðir eru frá Akureyri, ákveðið að skipta yfir í VG sem Ari segir hafa verið lítið mál enda ekki mikill málefnaágreiningur milli þessara tveggja vinstri flokka.
Aðspurður svarar hann neitandi að þetta hafi nokkuð að gera með hina svokölluðu „hallarbyltingu“ sem gerð í Sósíalistaflokknum vorið 2025, þegar hópur stillti sem sér upp til höfuðs Gunnari Smára Egilssonar, stofnanda flokksins, á aðalfundi.
„Það bara einhvern veginn náðist ekki að setja fókusinn út á land. Það var upplifunin hjá mjög mörgum, held ég.“
Fyrir vikið segir hann nýja forystu ungliðahreyfingarinnar ætla að setja landsbyggðarmálin betur á dagskrá.
Hann kveðst ekki geta sagt til um hvort margir aðrir Sósíalistar hafi gerst liðhlaupar til þess að ganga í VG. „Ég veit það ekki alveg,“ segir hann en bendir á að í sveitarstjórnarkosningum í maí hafi einhverjir flokksmenn Sósíalistaflokksins og VG myndað saman framboðið Vinstrið.