Fréttastofa hefur eftir heimildum að Alexander hafi verið á ferðalagi um Suðurlandið og meðal annars kíkt á veitingastaðinn Smiðjuna í Vík í Mýrdal þar sem hann gæddi sér á börger.
Vík í Mýrdal hefur síðasta áratuginn breyst í ákveðna ferðamannamiðstöð Suðurlands enda stutt þaðan í ýmsar perlur, svo sem Seljalandsfoss, Skógarfoss, Reynisfjöru og Sólheimasand og Jökulsárlón ekki langt frá.
Jason Alexander ættu flestir að kannast við sem hinn sérkennilega og seinheppna George Costanza úr gamanþáttunum Seinfeld (1989-98) en hann var sjö sinnum í röð tilnefndur til Emmy-verðlauna fyrir leik sinn í þáttunum. Auk þess hefur hann leikið í kvikmyndum á borð við Pretty Woman (1990), Jacob's Ladder (1990), Shallow Hal (2001) og The Electric State (2025). Hér að neðan má sjá nokkur ógleymanleg augnablik leikarans í hlutverki Costanza.
Ísland virðist ofarlega á radarnum hjá fræga fólkinu í Hollywood því á síðustu mánuðum hafa leikararnir Colman Domingo, Hunter Schafer, Nicole Kidman, Lea Michele og Millie Bobby Brown skellt sér í frí til Íslands sem og tónlistarkonurnar Ice Spice og Olivia Rodrigo.