Hörð viðbrögð við sýknudómi í nauðgunarmáli fyrir Landsrétti benda til þess að hann sé á skjön við almennan skilning á samþykki. Sérfræðingur segir Hæstarétt geta sett fordæmi í málinu.
Landsréttur sneri við dómi héraðsdóms og sýknaði mann af ákæru um nauðgun. Dómurinn klofnaði í málinu en meirihluti dómara komst að þeirri niðurstöðu að maðurinn hefði ekki gerst sekur um nauðgun því konan hefði gefið samþykki fyrir harkalegu kynlífi.
Konan hlaut margvíslega áverka eftir manninn: hún rifbeinsbrotnaði, tapaði heyrn og tognaði á hálsi, öxl, mjóbaki og mjaðmagrind. BDSM-samtökin eru meðal þeirra sem hafa gagnrýnt niðurstöðu Landsréttar.
María Rún Bjarnadóttir, sérfræðingur við lagadeild Háskólans í Reykjavík, segir mikla þróun hafa orðið á skilningi á hugtakinu samþykki á síðustu árum.
„Ég held að þegar við sjáum bara viðbrögðin í samfélaginu eins og núna við þessari niðurstöðu Landsréttar að þá er kannski svona almennur skilningur á því hvað felst í samþykki til kynferðisathafna, að þetta virðist nú ganga aðeins lengra en það. Það eru kannski ekki margir sem gera ráð fyrir að fara rifbeinsbrotnir út úr kynferðislegum samskiptum,“ segir María Rún.
Ríkissaksóknari íhugar að áfrýja sýknudómi Landsréttar til Hæstaréttar. María Rún segir ekki augljóst að Hæstiréttur samþykki áfrýjunarbeiðni í málinu.
„En það er nú kannski spurningar sem hafa svona víðtækt lögfræðilegt gildi eins og hvað felst í samþykki. Maður myndi kannski frekar hallast að því að það væri líklegra að Hæstiréttur tæki þannig mál til meðferðar,“ segir María Rún.