Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt mann um þrítugt til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir innflutning á fíkniefninu kratom. Dómarinn féllst ekki á málsvörn mannsins um að hann hefði ekki vitað að efnið væri ólöglegt.
Maðurinn þarf ekki að sitja inni, haldi hann skilorð næstu þrjá mánuði, en var gert að greiða tæpar fimm hundruð þúsund krónur í máls- og sakarkostnað.
Eins gerði lögregla upptæk þau tæpu tvö kíló af kratom eða mítragýnin sem maðurinn hafði flutt inn frá heimalandi sínu, Tékklandi.
Efnið kratom er lítt þekkt hérlendis en hefur þó nokkrum sinnum komið inn á borð Tollsins. Lögreglan á Norðurlandi eystra varaði við efninu fyrr á árinu, eftir að hald var lagt á tæp 60 kíló í tveimur aðskildum málum.
Efnið er unnið úr laufum suður-asísku plöntunnar Mytragina speciosa en yfirleitt er það selt sem grænt duft og sagt sambærilegt við te eða fæðubótarefni. Misjafnt er milli landa hvernig litið er á kratom, en það er ólöglegt á Íslandi og flokkað með ávana- og fíkniefnum.
Í smærri skömmtum hefur kratom örvandi áhrif en getur í meira magni haft sljóvgandi og deyfandi áhrif. Lögregla hefur varað fólk við að neyta þess, það sé stundum ranglega selt sem náttúrulyf, en notkun þess geti verið hættuleg og áhrifa svipað til ópíóíða.
Héraðsdómari á Vesturlandi gaf lítið fyrir skýringar mannsins fyrir dómi að í heimalandi hans væri litið á efnið eins og koffín, sem bætti einbeitingu og árangur í líkamsrækt. Flutningsaðili greindi honum frá að lyfið væri ólöglegt og það hefði komið mjög á óvart þegar hann var svo boðaður í skýrslutöku hjá lögreglu.
Hann játaði sök fyrir dómi.