Hægt verður að nýta allar sex verslanir Ikea í Danmörku sem neyðarskýli eða bráðabirgðasjúkrahús komi til hamfara, árása á mikilvæga innviði eða flóða í landinu. Sviðsstjóri almannavarnadeildar á Íslandi segir slíkt fyrirkomulag ekki hafa verið rætt hér heima en útilokar það ekki.
Ikea tekur þátt í viðbúnaðaráætlun atvinnulífsins í Danmörku. Fjöldi fyrirtækja sem tekur þátt hefur meira en þrefaldast síðan í desember, úr 63 fyrirtækjum í 223.
Torben Mortensen, öryggisstjóri IKEA í Danmörku segir Ikea auðveldlega geta séð yfir tvö þúsund manns fyrir mat á einum degi. Nóg sé af mat í veitingahúsum verslananna og svefnherbergisdeildina væri hægt að nýta undir gistingu.
Þá hefur Ikea einnig yfir að ráða varaafli og getur því brugðist við rafmagnsleysi. Það yrði þó ekki nema í ítrustu neyðartilvikum sem Ikea yrði lokað og nýtt sem skjól.
Á Íslandi eru ekki skilgreind neyðarskýli sem þessi. Runólfur Þórhallsson, sviðsstjóri Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, segir Almannavarnir með góðan samning við Rauða krossinn sem reki fjöldahjálparstöðvar þegar þess gerist þörf.
Þar sé þó ekki gert ráð fyrir læknisþjónustu og tilefni til að skoða nýjar ráðstafanir á breyttum tímum. Þar líti Ísland sérstaklega til frænda sinna á öðrum Norðurlöndum.
Já ég held að það sé full ástæða til þess að skoða þessa þróun í alþjóðamálunum. Að við eflum bæði viðbragðsgetuna okkar þá sérstaklega hvað varðar læknisþjónustu og viðbragðsgetu á spítölum.
Hann segir Almannavarnadeild þó ekki hafa átt samtal við Ikea á Íslandi um mögulega aðkomu fyrirtækisins að viðbragðsáætlunum enn sem komið er.
Ég útiloka það ekki að það gæti átt sér stað. En það hefur ekki enn þá átt sér stað.