Í umfjöllun Guardian kemur fram að ríkisstjórn Frakklands hafi fundað í dag vegna ástandsins í landinu. Líkt og fram hefur komið spruttu óeirðirnar upp í kjölfar mótmæla stúdenta sem kalla eftir fjármagni og betri kennsluaðstöðu. Fljótlega fóru mótmælin að vinda upp á sig og hafa hundruð þúsund manna tekið þátt. Tvö þúsund manns hafa verið handteknir í mótmælunum og 150 lögreglumenn slasast.
Guardian hefur eftir Sébastian Lecornu forsætisráðherra landsins að stjórnvöld séu staðráðin í því að koma á lögum og og reglu á ný í landinu. Ekki komi til greina að setja á allsherjarútgöngubann en takmarkað útgöngubann verður sett á í fjórum borgum í norðurhluta Frakklands frá klukkan 20:00 til 06:00 að morgni í nótt og næstu nótt, meðal annars í borginni Lille. Þá hafa borgaryfirvöld í Marseille, sem er næststærsta borg Frakklands, tilkynnt að allar samkomur séu bannaðar í borginni í dag.
Laurent Nuñez innanríkisráðherra Frakklands sagði í dag að skortur á fyrirhyggju hefði orðið til þess að lögregla hafi ekki ráðið við mótmælin. Upplýsingar yfirvalda hefðu bent til þess að um tvöhundruð þúsund manns myndu taka þátt í mótmælunum á landsvísu. Þeir hefðu hinsvegar reynst vera fimm hundruð þúsund.