Fjármála- og efnahagsráðherra segir að uppsögn Harðar Arnarsonar forstjóra Landsvirkjunar hafi verið almenns eðlis um áherslur í stjórnunum. Hann sagði engu við að bæta við skýringar stjórnar fyrirtækisins.
Þetta kom fram í svari ráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi. Hörður sagði upp störfum í byrjun mánaðar og hefur ekki tjáð sig um ástæður uppsagnarinnar en Brynja Baldursdóttir, stjórnarformaður Landsvirkjunar, hefur staðfest að ágreiningur hafi verið milli Harðar og stjórnar um áherslur í rekstri fyrirtækisins.
„Ég vil vekja athygli á því að þetta er ekki einkamál Viðreisnar. Þetta er Landsvirkjun,“ sagði Guðlaugur Þór hissa á afstöðu ráðherrans í fyrra svari og ítrekaði spurningu sína um hvers vegna Hörður hafi sagt af sér.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra ítrekaði fyrra svar sitt. „Ef um almennar stjórnunaráherslur er að ræða er engu við það að bæta. Hér er sagan öll. Mér þykir ákaflega leiðinlegt að háttvirtum þingmanni gremjist það en svona er stundum raunveruleikinn. Hann er einfaldlega ekki flóknari en þetta.“