Hafi í­hugað að gefast upp síðustu vikur - Vísir

Hafi í­hugað að gefast upp síðustu vikur - Vísir

Hafi í­hugað að gefast upp síðustu vikur - Vísir

Þetta segir Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, formaður Norðausturráðs Viðreisnar og meðlimur í stjórn flokksins, í skoðanagrein sem birtist á Vísi í dag. Greinin er birt í kjölfar þess að Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar í síðustu viku. Hann starfar nú sem óháður þingmaður undir samkomulagi við ríkisstjórnina. 

Jón hefur síðustu daga varpað ljósi á meinta kergju innan Viðreisnar. Hann segir skort á forystu innan flokksins og hefur talað um klíkumyndun og ósætti milli stórra persónuleika í forystu flokksins. 

Lovísa málar ekki upp bjarta mynd af stöðunni innan flokksins:

„Ég viðurkenni það hér með að síðustu vikur og mánuði hef ég verið tilbúin til að kasta inn handklæðinu. Ég hef velt því alvarlega fyrir mér hvort ég nenni yfirhöfuð að halda áfram að halda með liðinu mínu. Hvort orkan sem fer í þetta sé þess virði og hvort ég geti enn staðið með því sem verið er að gera.“

Hafi lengi afsakað misgóðar ákvarðanir

Athygli hefur vakið að Jón hefur mikið notað myndmál til að lýsa stöðunni innan Viðreisnar. 

Lovísa grípur einmitt í myndmál til að lýsa sinni upplifun og líkir stöðunni hjá Viðreisn við fótboltalið í hálfleik sem gerir sig tilbúið fyrir að leika síðari hálfleikinn. Það að vera í stjórnmálaflokki sé svipað og að halda með fótboltaliði að hennar mati. 

„Ég hef haldið með Viðreisn síðan 2017. Ég hef mætt á leiki, verið á sjoppuvöktum, grillað hamborgara, öskrað í stúkunni, farið heim og bölvað liðinu og meira að segja æft linnulaust og gert tilraun til að komast í liðið. Ég hef fyllt á vatnsbrúsa og þrifið klefana,“ skrifar hún.

Hún segist lengi hafa getað afsakað misgóðar ákvarðanir leiðtoga flokksins á þeim nótum að flokkurinn væri ungur. 

„Við hefðum aldrei spilað í efstu deild og til þess að komast þangað þyrfti að taka áhættu. Allir yrðu að leggja hönd á plóg. Allt þetta borgaði sig. Þingstyrkur Viðreisnar þrefaldaðist í kosningunum 2024 og sama hvað þér finnst um flokkinn þá hefur vörumerkið aldrei verið eins stórt og einmitt núna.“

Flokkurinn hafi brugðist

Hún ítrekar þó að núna sé hún svekkt út í flokkinn. Svekkelsið byggist fyrst og fremst á forgangsröðun og ákvarðanatöku ríkisstjórnarinnar. Hún áréttar að ólíkt sumum fótboltastuðningsmönnum muni hún ekki standa með liði sínu sama hvað.

Hún segist fyrst og fremst vera manneskja með gildi og að hún hafi gengið til liðs við flokkinn því hann hafi endurspeglað þau. 

„Og mér finnst flokkurinn minn hafa brugðist þeim að einhverju leyti. Ég hef saknað fyrirsjáanleika í málflutningi og ákvarðanatöku, skýrari upplýsingamiðlunar og meiri áræðni í frelsismálum. Mér finnst hagsmunir almennings um land allt ekki hafa fengið það vægi sem þeir eiga skilið og ég hef saknað samstöðu þess sterka teymis sem ég taldi okkur vera.“

Hún segir mikilvægt að geta gagnrýnt eigið lið. Hún beri ábyrgð á stöðunni jafnt og aðrir innan flokksins. 

„Forysta er ekki bara formaður og varaformaður, þingflokksformaður eða framkvæmdastjóri. Forysta er líka fólkið sem heldur starfinu gangandi, mætir á fundina, vinnur sjálfboðavinnuna og stendur í stúkunni þegar illa gengur.“

Að hennar mati eigi að gera auknar kröfur til kjörinna fulltrúa. Þeir séu eins og leikmenn fótboltaliðs sem tapa og vinna leiki. 

„Ég hef upplifað máttleysi, skort á því að láta verk fylgja orðum inni á Alþingi og þróttleysi gagnvart því sem Viðreisn lagði upp með í kosningabaráttunni 2024. Mér finnst við hafa verið of upptekin af því að vera ábyrg og skynsöm til þess að muna eftir því að vera líka hugrökk.“

Hún segir að sökina megi rekja til þess að flokkurinn sitji í ríkisstjórn með tveimur flokkum til vinstri. Forgangsröðunin byggi eðli málsins samkvæmt á samningaviðræðum.

„En ekki er hægt að skrifa allt á samstarfsflokkana eða ríkissjóð. Og það er ekki hægt að biðja stuðningsfólk endalaust um þolinmæði án þess að sýna því hvert ferðinni er heitið. Viðreisn hefur að mínu mati fjarlægst mikilvægan hluta af sínu eigin erfðamengi. Við höfum gleymt að halda góðri stemningu í klefanum.“

Segir flokkinn þurfa að vakna áður en það verður um seinan

Hún segist hafa gengið til liðs við flokk gleðinnar, mennskunnar og hlýjunnar. Hún kallar eftir því að fá þann flokk aftur. 

„Þetta er ekki ákall um að skipta út leikmönnum eða reka þjálfarann. Ég hef engan áhuga á að fara í manninn þegar boltinn liggur fyrir framan okkur. En það er heldur engin ástæða til að klappa fyrir slæmri sendingu bara af því að hún kemur frá okkar eigin leikmanni.“

Það blasi við að hennar mati að það þurfi að breyta leikskipulaginu. Hún segist ekki tilbúin að sitja í stúkunni og horfa á leikinn fara í sandinn. Skrif hennar séu persónuleg yfirlýsing um að hún ætli að leggja sitt af mörkum til að vekja flokkinn úr leiðslu að feigðarósi.

Hún segir það langt því frá að hún sé ein um þessar skoðanir.

„Víða um land situr fólk í sömu treyju og ég, fólk sem hefur lagt á sig ómælda vinnu, trúir enn á málstaðinn en hefur verið að velta því fyrir sér hvort það nenni að mæta á næsta leik,“ segir hún og tekur fram að kominn sé tími til að Viðreisnarmenn láti vel í sér heyra. 

„Það er síðari hálfleikur að byrja. Nú er að duga eða drepast.“

#gefast #hafi #síðustu #upp #íhugað


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262950694d/hafi-ihugad-ad-gefast-upp-sidustu-vikur

📰 Aðrar fréttir

Komu til Íslands til að fagna gullbrúðkaupi – Ferðin breyttist í martröð
📅 19.10.2026 👁️ 0
Komu til Íslands til að fagna gullbrúðkaupi – Ferðin breyttist í martröð
Tom Profitt og eiginkona hans komu hingað til lands í lok september til að fagna 50 ára brúðkaupsafmæli sínu. Dvöldu þau á landinu í viku, gengu víða ...
Lára hefur greinst þrisvar með krabbamein: „Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót“
📅 19.10.2026 👁️ 0
Lára hefur greinst þrisvar með krabbamein: „Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót“
Lára Árnadóttir hefur þrisvar sinnum greinst með krabbamein. Hún er þakklát fyrir lífið og fyrir að hafa þekkt sinn líkama og hlustað á einkennin.
Sumarvinnan skapar samkeppnisforskot sem ekki má glutra niður
📅 19.10.2026 👁️ 1
Sumarvinnan skapar samkeppnisforskot sem ekki má glutra niður
Rannveig Rist lét af störfum sem forstjóri álvers Rio Tinto í Straumsvík í maí en hún hafði þá gegnt starfinu í um 30 ár. Á ársfundi Samtaka atvinnulí...
Sveitar­fé­lagi ekki skylt að smala ágangs­fé úr skógræktar­landi - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 1
Sveitar­fé­lagi ekki skylt að smala ágangs­fé úr skógræktar­landi - Vísir
Hrefna Dagbjört Arnardóttir, eigandi jarðarinnar Óseyrar við Stöðvarfjörð, þar sem bæði er stunduð ferðaþjónustustarfsemi og skógrækt, höfðaði málið á...
Eldur í potti á Norðurbakka
📅 19.10.2026 👁️ 2
Eldur í potti á Norðurbakka
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er í útkalli vegna elds á Norðurbakka í Hafnarfirði. Þar reyndist eldur hafa kviknað í potti. Vel gekk að slökkva eldi...
Eldur kom upp í verslun í Hafnar­firði - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 1
Eldur kom upp í verslun í Hafnar­firði - Vísir
Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir við Vísi að slökkviliðinu hafi borist útkallið á sjöunda tímanum en...
Túlkun Landsréttar á samþykki á skjön við almenningsálit
📅 19.10.2026 👁️ 1
Túlkun Landsréttar á samþykki á skjön við almenningsálit
Hörð viðbrögð við sýknudómi í nauðgunarmáli fyrir Landsrétti benda til þess að hann sé á skjön við almennan skilning á samþykki. Sérfræðingur segir Hæ...
Ukrainians dying because US restricting intelligence sharing, Zelensky adviser tells BBC
📅 19.10.2026 👁️ 1
Ukrainians dying because US restricting intelligence sharing, Zelensky adviser tells BBC
Serhii Beskrestnov says there has not been enough time to warn people about incoming missile attacks. The White House said there had been no changes t...
Geta nýtt Ikea sem neyðarskýli
📅 19.10.2026 👁️ 2
Geta nýtt Ikea sem neyðarskýli
Hægt verður að nýta allar sex verslanir Ikea í Danmörku sem neyðarskýli eða bráðabirgðasjúkrahús komi til hamfara, árása á mikilvæga innviði eða flóða...
Matthías opnar sig um erfiða baráttu – Vill koma mikilvægum skilaboðum til annarra karla
📅 19.10.2026 👁️ 2
Matthías opnar sig um erfiða baráttu – Vill koma mikilvægum skilaboðum til annarra karla
Matthías Freyr Matthíasson, 46 ára, greindist með ristilkrabbamein í apríl síðastliðnum eftir að hafa glímt við mikla kviðverki um nokkurt skeið. Sköm...
Fyrrum Sósíal­istar stýra Ungum vinstri grænum - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Fyrrum Sósíal­istar stýra Ungum vinstri grænum - Vísir
Um helgina var greint frá því að Ung vinstri græn (UVG) hefði kosið sér nýja forystu.  Hinn 26 ára Ari Orrason var kjörinn formaður en í þingkosningum...
Íslendingur í París: „Á laugardaginn varð allt svolítið „crazy“ í borginni“
📅 19.10.2026 👁️ 2
Íslendingur í París: „Á laugardaginn varð allt svolítið „crazy“ í borginni“
Íslenskur skiptinemi sem býr í París í Frakklandi fann lítið fyrir mótmælunum sem hafa verið í borginni, þar til um helgina. Mótmælin hafa stigmagnast...
Fara fram á út­göngu­bann í nokkrum frönskum borgum - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Fara fram á út­göngu­bann í nokkrum frönskum borgum - Vísir
Í umfjöllun Guardian kemur fram að ríkisstjórn Frakklands hafi fundað í dag vegna ástandsins í landinu. Líkt og fram hefur komið spruttu óeirðirnar up...
Lögregla búin að hafa uppi á öllum grunuðum um hópárás
📅 19.10.2026 👁️ 2
Lögregla búin að hafa uppi á öllum grunuðum um hópárás
Lögreglan á Suðurnesjum hefur haft uppi á öllum fimm sem eru grunaðir um stórfellda hópárás í Reykjanesbæ fyrr í mánuðinum. Árásin átti sér stað í byr...
Teenager brutally beaten by group of five in Gran Canaria
📅 19.10.2026 👁️ 3
Teenager brutally beaten by group of five in Gran Canaria
A 16-year-old boy has suffered a broken arm and multiple injuries after allegedly being attacked by a group of five young people in Vecindario, Gran C...
„Leiðin­legt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
„Leiðin­legt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ - Vísir
Þetta segir Birna Íris Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands, í samtali við fréttastofu. Tilefnið er tilkynning lögreglu í síðustu viku þar se...
Gísli Freyr og Þórður Snær fara yfir stöðuna eftir brotthvarf Jóns - „Það er ekki til að slá á sögur um klíkumyndun“
📅 19.10.2026 👁️ 3
Gísli Freyr og Þórður Snær fara yfir stöðuna eftir brotthvarf Jóns - „Það er ekki til að slá á sögur um klíkumyndun“
Gísli Freyr Valdórsson, umsjónarmaður Þjóðmála, telur að það sé skrítin stemning í þingflokki Viðreisnar og að það verði gerðar breytingar á forystu f...
Ljósmyndarar saka lögregluna um árásir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Ljósmyndarar saka lögregluna um árásir
Ljósmyndarar saka lögregluna um árásir Yfirvöld í Danmörku hefja rann­sókn eftir að frétta­ljós­mynd­arar lýsa árásum af hálfu lög­regl­unnar. Ljós­my...
For­ystan sé búin að missa klefann - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
For­ystan sé búin að missa klefann - Vísir
Þetta segir Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, formaður Norðausturráðs Viðreisnar og meðlimur í stjórn flokksins, í skoðanagrein sem birtist á Vísi í dag. ...
Wolt-sendlar íhuga næstu skref í kjarabaráttu
📅 19.10.2026 👁️ 3
Wolt-sendlar íhuga næstu skref í kjarabaráttu
Um sex hundruð sendlar starfa hjá Wolt hér á landi.Hópur þeirra lagði niður störf um miðjan september þegar laun þeirra voru lækkuð um allt að 40 prós...
Ísaksskóli eignast Ísaksskóla - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Ísaksskóli eignast Ísaksskóla - Vísir
Frá þessu er greint í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Þar segir að kaupin byggi á endurkauparétti sem samið var um við Reykjavíkurborg árið 2011.  Sk...
Játaði innflutning á kratom og sagðist fá sér það eins og kaffi
📅 19.10.2026 👁️ 3
Játaði innflutning á kratom og sagðist fá sér það eins og kaffi
Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt mann um þrítugt til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir innflutning á fíkniefninu kratom. Dómari...
Ex-OpenAI worker accused of planting device had Saudi support says court filing
📅 19.10.2026 👁️ 3
Ex-OpenAI worker accused of planting device had Saudi support says court filing
The Saudi government did not immediately respond to BBC requests for comment.
Tvö bandarísk herskip í Jökulfjörðum
📅 19.10.2026 👁️ 3
Tvö bandarísk herskip í Jökulfjörðum
Tvö herskip bandaríska sjóhersins eru í Jökulfjörðum: skipin Hos Red Rock og Hos Red Dawn.Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni hafa þau leyfi s...
Inga um ótta kennara: „Staðan er graf­alvar­leg“ - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Inga um ótta kennara: „Staðan er graf­alvar­leg“ - Vísir
Þetta kom fram í svari ráðherra við fyrirspurn Snorra Mássonar, þingmanns Miðflokksins, á Alþingi í dag. Snorri vísaði til fréttaflutnings síðustu vik...
Katrín Oddsdóttir: Þetta er eins og ef einhver heimilaði kjúklingabú í garðinum þínum án þess að spyrja þig
📅 19.10.2026 👁️ 4
Katrín Oddsdóttir: Þetta er eins og ef einhver heimilaði kjúklingabú í garðinum þínum án þess að spyrja þig
Lykilstarfsmenn fyrirtækja og samtaka í sjávarútvegi fara þaðan beint til starfa í ráðuneyti og stofnunum sem koma að lagasetningu og leyfisveitingum....
Trú og heift: Keppinautar í öldungadeild Texas með ólíka framtíðarsýn
📅 19.10.2026 👁️ 4
Trú og heift: Keppinautar í öldungadeild Texas með ólíka framtíðarsýn
Trú og heift: Keppinautar í öldungadeild Texas með ólíka framtíðarsýn Kosn­inga­bar­áttan fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber er orðin jafn­ari en...
Jarð­skjálftinn 5,2 að stærð - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Jarð­skjálftinn 5,2 að stærð - Vísir
Þetta kemur fram í athugasemd jarðfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Síðast urðu skjálftar af þessari stærðargráðu þann 5. október og 28. júlí. Nokkrir ...
Mannskæð drónaárás nærri markaði
📅 19.10.2026 👁️ 4
Mannskæð drónaárás nærri markaði
Að minnsta kosti 80 voru drepnir í drónaárás í suðurhluta Súdan í gær. Árásin var við samgöngumiðstöð nærri markaði í Al-Dibab í Vestur-Kordofan, en þ...
Gianni Infantino: Uefa gives Fifa deadline to release key documents
📅 19.10.2026 👁️ 4
Gianni Infantino: Uefa gives Fifa deadline to release key documents
European governing body Uefa tells Fifa it must release key documents related to its governance and decision-making by 2 November.
Heimsfrægur píanósnillingur leikur í Hörpu í kvöld – tónleikar sagðir hafa farið fram hjá íslenskum fjölmiðlum
📅 19.10.2026 👁️ 4
Heimsfrægur píanósnillingur leikur í Hörpu í kvöld – tónleikar sagðir hafa farið fram hjá íslenskum fjölmiðlum
Heimsfrægur píanósnillingur leikur í Hörpu í kvöld – tónleikar sagðir hafa farið fram hjá íslenskum fjölmiðlum Fréttin19. október 2026Erlent, Innlent,...
Saka Ingu um skæting og hel­beran dóna­skap - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Saka Ingu um skæting og hel­beran dóna­skap - Vísir
Sigurjón virtist þar vera að vísa til þess að stjórnarandstaðan hefði gert sig bera af ofurviðkvæmni í hinu pólitíska argaþrasi þar sem menn hafa eina...
Skjálfti 5,2 að stærð í Bárðarbungu
📅 19.10.2026 👁️ 4
Skjálfti 5,2 að stærð í Bárðarbungu
Skjálfti af stærðinni 5,2 varð í Bárðarbungu klukkan korter í þrjú. Nokkrir eftirskjálftar hafa fylgt, flestir minni en 2 að stærð. Nokkrir skjálftar ...
Frá viðarkurli til vítissóda – loftslagið og rétttrúnaðurinn
📅 19.10.2026 👁️ 4
Frá viðarkurli til vítissóda – loftslagið og rétttrúnaðurinn
Frá viðarkurli til vítissóda – loftslagið og rétttrúnaðurinn Fréttin19. október 2026Aðsend grein, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsso...
Er gervigreindin okkar eina vopn gegn einokun RÚV?
📅 19.10.2026 👁️ 4
Er gervigreindin okkar eina vopn gegn einokun RÚV?
Er gervigreindin okkar eina vopn gegn einokun RÚV? Fréttin19. október 2026Aðsend grein, Gervigreind, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skri...
Ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á English Pub
📅 19.10.2026 👁️ 4
Ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á English Pub
Héraðssaksóknari hefur ákært erlendan mann á fertugsaldri fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás fimmtudaginn 14. mars árið 2024, á veitingastaðnum En...
Ráðherra í stjórnarandstöðu
📅 19.10.2026 👁️ 4
Ráðherra í stjórnarandstöðu
Ráðherra í stjórnarandstöðu Fréttin19. október 2026Innlent, Páll Vilhjálmsson, StjórnmálLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Þorgerður Katrín ut...
Lögregla stýrði umferð til að liðka fyrir sjúkraflutningum
📅 19.10.2026 👁️ 4
Lögregla stýrði umferð til að liðka fyrir sjúkraflutningum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stýrði umferð vegna bráðra sjúkraflutninga af Suðurlandi. Þetta staðfestir Árni Friðleifsson aðstoðaryfirlögregluþjónn....
Kraumar enn í Wolt-sendlum - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Kraumar enn í Wolt-sendlum - Vísir
Fyrir rúmum mánuði lögðu sendlar hjá Wolt tímabundið niður störf, mótmæltu við skrifstofur fyrirtækisins og vísuðu til þess að laun þeirra hefðu verið...
Skólar rýmdir eftir sprengjuhótanir íslamista á Norður-Írlandi – Allt að 300 skólar fengu hótun
📅 19.10.2026 👁️ 4
Skólar rýmdir eftir sprengjuhótanir íslamista á Norður-Írlandi – Allt að 300 skólar fengu hótun
Skólar á Norður-Írlandi voru rýmdir í morgun eftir að þeim bárust sprengjuhótanir í tölvupósti. Foreldrar voru beðnir að sækja börnin sín þegar í stað...
Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða - Vísir
Börnin voru sum bundin á meðan þau sveltu. Yfirvöld fundu rúmlega fjögur hundruð lík í grunnum gröfum í Shakahola-skógi. Þar leiddi Mackenzie fylgjend...
Sameinuðu þjóðirnar draga úr aðstoð á Gaza vegna fjárskorts
📅 19.10.2026 👁️ 4
Sameinuðu þjóðirnar draga úr aðstoð á Gaza vegna fjárskorts
Matvælahjálp Sameinuðu þjóðanna greindi frá því í morgun að hætta þurfi mánaðarlegum stuðningi við hálfa milljón íbúa á Gaza vegna fjárskorts. Shaun H...
Costanza á klakanum - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Costanza á klakanum - Vísir
Fréttastofa hefur eftir heimildum að Alexander hafi verið á ferðalagi um Suðurlandið og meðal annars kíkt á veitingastaðinn Smiðjuna í Vík í Mýrdal þa...
Engu við að bæta um uppsögn Harðar
📅 19.10.2026 👁️ 4
Engu við að bæta um uppsögn Harðar
Fjármála- og efnahagsráðherra segir að uppsögn Harðar Arnarsonar forstjóra Landsvirkjunar hafi verið almenns eðlis um áherslur í stjórnunum. Hann sagð...
Australian MP critically injured after being hit by car in apparent attack
📅 19.10.2026 👁️ 4
Australian MP critically injured after being hit by car in apparent attack
The independent politician is in hospital after what the prime minister says may have been a deliberate attack.
Þúsundir hvetja til út­tektar og ríkis­sak­sóknari í­hugar á­frýjun - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Þúsundir hvetja til út­tektar og ríkis­sak­sóknari í­hugar á­frýjun - Vísir
Maður sem sýknaður var af nauðgun í Landsrétti í síðustu viku hafði áður verið dæmdur í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur. Konan í málinu hla...
Hávarður tók eigið líf – Móðir hans lýsir síðustu dögunum í lífi hans
📅 19.10.2026 👁️ 4
Hávarður tók eigið líf – Móðir hans lýsir síðustu dögunum í lífi hans
Hilma Dögg er þriggja barna móðir sem ólst upp að mestu fyrir norðan. Hún er móðir Hávarðar Mána sem lést fyrir rúmu ári síðan eftir mikla baráttu. Ha...
Björgvin vill viðurkenningu á því að brotið hafi verið gegn honum – „Ég var barinn og laminn þar“
📅 19.10.2026 👁️ 4
Björgvin vill viðurkenningu á því að brotið hafi verið gegn honum – „Ég var barinn og laminn þar“
Björgvin Kristbergsson, meðstjórnandi í Átaki, félagi fólks með þroskahömlun, birti áhrifamikla grein í Morgunblaðinu í dag. Björgvin, sem er á sjötug...
„Það eru alltaf stóru flokkarnir sem tala fyrir fækkun kjörinna fulltrúa“
📅 19.10.2026 👁️ 4
„Það eru alltaf stóru flokkarnir sem tala fyrir fækkun kjörinna fulltrúa“
Gunnar Axel Axelsson, fyrrverandi bæjarstjóri Voga, gefur lítið fyrir orð Hildar Björnsdóttur borgarstjóra um að fækka ætti borgarfulltrúum. Málið sé ...
Sjáðu samninginn sem Viðreisn gerði við Jón Gnarr
📅 19.10.2026 👁️ 4
Sjáðu samninginn sem Viðreisn gerði við Jón Gnarr
Jón Gnarr á að styðja fjárlög, fjáraukalög og önnur stefnumótandi stjórnarfrumvörp sem kveðið er á um í stjórnarsáttmála, á móti fær Jón sérfræðiaðsto...