Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stýrði umferð vegna bráðra sjúkraflutninga af Suðurlandi. Þetta staðfestir Árni Friðleifsson aðstoðaryfirlögregluþjónn. Hann segir aðstoðarbeiðni hafa borist í gegnum fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra.
Nokkur bifhjól lögreglu hafi brugðist við beiðninni með því að liðka fyrir umferð þar sem þörf var á til að koma sjúkrabílnum hratt og örugglega á Landspítalann í Fossvogi.
Lögreglan á Suðurlandi segir flutningana vera vegna bráðra veikinda.
Fréttastofu bárust nokkrar ábendingar um að lögregla væri að stýra umferð á höfuðborgarsvæðinu og að einhverjar tafir hefðu orðið vegna þessa.