Um 3000 hjartastuðtæki eru víðs vegar um landið. Heilbrigðisráðuneytið hefur hrundið af stað verkefni að skrásetja öll tækin. Þorbjörg Katrín Davíðsdóttir stýrir verkefninu fyrir heilbrigðisráðuneytið en hún vinnur á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Hver er tilgangur verkefnisins?
„Þannig þegar að einhver lendir í hjartastoppi og einhver hringir í Neyðarlínuna þannig að Neyðarlínan geti séð hvort að það sé tæki staðsett nálægt þeim,“ segir Þorbjörg.
Landsmenn eru oft óöruggir að nota slík tæki en Jón Gudmund Knutsen, leiðbeinandi hjá mennta- og vísindadeild SAk, segir að hver sem er eigi að geta notað tækin enda tali þau við notendur á íslensku.
„Staðreyndin er sú að það þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af þessu. Þetta eru sjálfvirk tæki af því leytinu til. Maður getur ekki fengið stuð nema að sé að snerta sjúklinginn akkúrat þegar er verið að stuða hann. Ef maður nær að róa sig niður og hlusta á leiðbeiningar tækisins, þá áttu að geta notað þetta. “