Mótmælin í Frakklandi, sem hófust meðal framhaldsskólanema um miðjan september, minna um margt á óeirðirnar árið 1968. Þetta segir Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands.
„Í sjálfu sér minna þau að mörgu leyti á óeirðirnar 1968. Þær byrja sem stúdentaóeirðir, þessi byrja sem menntaskólaóeirðir, en síðan breiðist þetta út og verður meira að almennum mótmælum sem tengjast síðan aftur verkalýðshreyfingum,“ segir Guðmundur.
Guðmundur segir að greina þurfi á milli mótmælanna sjálfra og þeirra skemmdarverka sem fylgt hafa í framhaldinu. Hann bendir á að framhaldsskólanemar hafi upphaflega mótmælt slæmum aðstæðum í skólum vegna niðurskurðar ríkisins og að verkalýðshreyfingin hafi síðar bæst í hópinn vegna versnandi lífskjara.
Franska ríkisstjórnin kom saman á neyðarfundi í morgun vegna óeirða helgarinnar. Í framhaldinu var borgaryfirvöldum veitt heimild til að setja á útgöngubann. Það hefur þegar tekið gildi í nokkrum borgum og einnig í nokkrum hverfum í París. Þá hafa mótmæli verið bönnuð í einhverjum hverfum Parísar.
Erfitt að segja til um framhaldið
Guðmundur segir óvíst hvernig mótmælin muni þróast. Ofbeldið um helgina kunni að draga úr stuðningi við þau en einnig sé mögulegt að þau haldi áfram um langa hríð. „Ég held að þetta hafi gengið fram af mönnum, þetta ofbeldi sem kom upp núna,“ segir Guðmundur.
Hann bendir á að mótmæli Gulu vestanna fyrir nokkrum árum hafi staðið vikum og mánuðum saman.
Mótmælin beinast að hluta gegn stefnu Macrons, að sögn Guðmundar. Forsetinn hafi leitast við að draga úr ríkisútgjöldum til að stemma stigu við vaxandi skuldum ríkisins og óánægjan sé að einhverju leyti afleiðing þeirrar stefnu. Hvaða áhrif þetta hafi á pólitíska arfleifð hans fari þó eftir framhaldinu.
„Þetta hefur alveg örugglega áhrif á kosningarnar“
Forsetakosningar verða í Frakklandi næsta vor og Macron, sem er að ljúka seinna kjörtímabili sínu, getur ekki boðið sig fram aftur.
Guðmundur telur að óeirðirnar geti haft áhrif á kosningabaráttuna. Marine Le Pen og flokkur hennar leggja mikla áherslu á lög og reglu og gætu því reynt að nýta sér óánægju með ástandið. Hann segir þó ekki sjálfgefið að Le Pen hagnist á óeirðunum.
Í frönsku forsetakosningunum keppa tveir efstu frambjóðendurnir í síðari umferð og frambjóðandi nær pólitískri miðju gæti reynst henni erfiður andstæðingur.
„Þetta hefur alveg örugglega áhrif á kosningarnar,“ segir Guðmundur.
Í spilaranum hér að neðan má horfa á umfjöllun sjónvarpsfrétta um útgöngubannið í Frakklandi sem endar á viðtali við Guðmund Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði.