Stjórnarnandstaðan sakaði Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra um dónaskap þegar hún var beðin um að útskýra nýtt einkunnakerfi í grunnskóla á þingi í dag.
Í vor verður nemendum í 10. bekk grunnskóla gefin einkunn í tölustöfum í stað bókstafa áður.
Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokks, sagði í óundirbúnum fyrirspurnatíma að leiðbeiningar stjórnvalda væru ruglingslegar og fór fram á frekari útskýringar frá ráðherra. Svör ráðherra vöktu litla hrifningu stjórnarandstæðinga.