Styrkir til kaupa á rafknúnum fólksbílum lækka um 100 þúsund krónur um næstu mánaðamót, úr 500 í 400 þúsund, samkvæmt reglugerð sem umhverfisráðherra undirritaði í síðustu viku. Samhliða þessu lækkar hámarksverð styrkhæfra bíla um tvær milljónir, úr tíu milljónum í átta.
Björn Víglundsson framkvæmdastjóri sölusviðs hjá bílaumboði Heklu segist búast við aukinni sölu á næstu dögum áður en breytingarnar taka gildi. Margar fyrirspurnir hafi borist eftir að breytingarnar voru kynntar í síðustu viku.
„Það verður meiri sala næstu tvær vikurnar svo eitthvað aðeins minna næstu tvær vikurnar þar á eftir en síðan jafnar þetta sig til lengri tíma litið,“ segir Björn.
Benedikt S. Benediktsson framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins segir að þrátt fyrir að stjórnvöld hafi boðað breytingar á kerfinu hafi tímasetningin komið á óvart og fyrirvarinn verið stuttur.
„Við fengum í grunninn bara sama fyrirvara og aðrir. Þetta var tilkynnt í síðustu viku. Hins vegar var það þannig að þegar við sáum í fjárlagafrumvarpinu að það átti að fara að skerða framlög í þennan málaflokk þá höfðum við samband við ráðuneytið og spurðum. Það var fyrir mánuði síðan og við töldum okkur verða þess áskynja að það væru breytingar í farvatninu fyrr heldur en um áramót,“ segir Benedikt.
Hátt í 11 þúsund fólksbílar hafa verið nýskráðir hér á landi það sem af er þessu ári og þar af tæplega fimm þúsund og fimm hundruð rafbílar samkvæmt tölum frá Samgöngustofu. Hlutfall rafbíla af heildarinnflutningi hefur almennt farið vaxandi og þá helst á kostnað bensín- og díselbíla. Benedikt telur ólíklegt að lækkun styrkja hafi áhrif á þessa þróun og vísar til þess að rafbílar hafi lækkað í verði um síðustu áramót þegar vörugjöld voru felld niður.
„Og svo er hitt að verðþróun á rafhlöðum í rafmagnsbíla hefur farið lækkandi. Þannig að það er að vinna með stjórnvöldum þegar að þessu kemur og þá söluaðilum og neytendum. Þannig að ég geri ráð fyrir að áhrifin til meðallangs eða lengri tíma verði takmörkuð,“ segir Benedikt.