Stjórn Bifreiðastjórafélagsins Frama hefur sent bréf til innviðaráðherra þar sem hún kallar eftir því að eftirlit með leiguakstri verði aukið og nýsamþykktum lögum um leigubifreiðaakstur verði framfylgt.
Frumvarp um breytingar á lögum um bifreiðaakstur var samþykkt á Alþingi í mars síðastliðnum. Með breytingunum var svokölluð stöðvaskylda tekin upp á ný og eftirlit með starfsemi leigubifreiða aukið.
„Frá 2023 hefur orðið neikvæð þróun og offjölgun í rekstri leigubifreiða, ör mannaskipti í stéttinni, rangar eða engar merkingar bifreiða, rekstur ekki skráður, tekjur færðar á erlenda reikninga, leyfum skilað inn, bifreiðar skráðar úr leiguakstri, en starfsemi haldið áfram samt sem áður. Á sama tíma hefur rekstrarkostnaður aukist verulega með hækkandi gjöldum samhliða verri afkomu. Ekkert eftirlit hefur verið með nýtingu leyfa eftir að öll takmörkun var afnumin,” segir í bréfinu.
Fram kemur að frá árinu 2014 hafi Bifreiðastjórafélagið Frami óskað eftir að stjórnvöld taki á svörtum farþegaakstri.
„Í miðbæ Reykjavíkur má til dæmis sjá almennar bifreiðar stelast í stæði leigubifreiða og taka upp farþega. Þar að auki er töluvert um óskráða leigubíla sem sækja farþega frá hótelum og gististöðum alla daga og nætur. Hér ætti eftirlitið ekki síst að uppræta brotastarfsemina,” segir jafnframt í bréfinu.