Vilhjálmur ráðinn bæjarstjóri án þess að fyrir lægi ráðningarsamningur - „Ég skil ekki alveg hvert við erum að fara í þessum efnum“ - DV

Vilhjálmur ráðinn bæjarstjóri án þess að fyrir lægi ráðningarsamningur - „Ég skil ekki alveg hvert við erum að fara í þessum efnum“ - DV

Vilhjálmur ráðinn bæjarstjóri án þess að fyrir lægi ráðningarsamningur - „Ég skil ekki alveg hvert við erum að fara í þessum efnum“ - DV

Á bæjarstjórnarfundi í Reykjanesbæ var samþykkt að Vilhjálmur Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins í bænum og alþingismaður, yrði ráðinn bæjarstjóri. Þetta var hins vegar gert án þess að fyrir lægi ráðningarsamningur bæjarins við Vilhjálm. Minnihluti bæjarstjórnar gagnrýndi þetta á fundinum og sagði þetta ekki bera vott um faglega og trausta stjórnsýslu. Sagði minnihlutinn eðlilegra að ráðningarsamningur lægi fyrir og að fjallað hefði verið um hann í bæjarráði áður en bæjarstjórn staðfesti ráðningu Vilhjálms. Vilhjálmur vildi meina að bæjarstjórn yrði að samþykkja ráðningu hans áður en bæjarráð gæti gengið frá ráðningarsamningi og að svona vinnulag væri vel þekkt. Hins vegar var önnur leið farin á Akureyri en þar lá ráðningarsamningur fyrir þegar ráðning nýs bæjarstjóra var samþykkt.

Það var þó ekki kjörinn bæjarfulltrúi sem vakti athygli á þessu á samfélagsmiðlum heldur var það Arnar Páll Guðmundsson oddviti Viðreisnar í nýafstöðnum bæjarstjórnarkosningum en flokkurinn náði ekki inn manni í bæjarstjórn Reykjanesbæjar. Sagði Arnar Páll á Facebook að hann hefði ásamt félögum sínum í flokknum verið viðstaddur þennan fyrsta fund nýkjörinnar bæjarstjórnar enda ætlaði Viðreisn sér að fylgjast vel með gangi mála og standa vörð um hagsmuni íbúa, þrátt fyrir að flokkurinn hafi ekki náð kjöri í bæjarstjórn.

Arnar Páll Guðmundsson. Mynd: Viðreisn.

Segist Arnar Páll taka undir með minnihluta bæjarstjórnar um að slík vinnubrögð samræmist illa þeim kröfum sem gera verði um vandaða, ábyrga og gagnsæja stjórnsýslu. Það sé því eðlilegt að spurt sé hvort fleiri mál muni í framtíðinni verða afgreidd með sambærilegum hætti:

„Við í Viðreisn í Reykjanesbæ höfum frá upphafi talað fyrir því að ráðning bæjarstjóra fari fram á faglegum forsendum og með skýrum og gagnsæjum hætti. Þá afstöðu höfum við ekki aðeins haldið, heldur styrkst í henni eftir að hafa fylgst með þessum fyrsta fundi.“

Pistill Arnars Páls fór ekki framhjá Vilhjálmi sem svaraði honum ekki að öðru leyti en því að setja hjartatjákn við hann.

Vinnubrögð

Borin var á fundinum upp tillaga meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks um ráðningu Vilhjálms sem bæjarstjóra.

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir oddviti Framsóknarflokksins, sem er í minnihluta ásamt Samfylkingunni, tók þá til máls og tók það í upphafi fram að gagnrýni hennar sneri ekki að persónu Vilhjálms heldur fyrst og fremt því að ekki lægi fyrir ráðningarsamningur áður en bæjarstjórn samþykkti ráðninguna:

„Ráðning bæjarstjóra er nefnilega ein af stærstu og mikilvægustu ákvörðunum sem að teknar eru hér í bæjarstjórn og þess vegna skiptir máli að við vöndum til verka og að bæjarfulltrúar geti tekið umræðu og upplýsta ákvörðun á grundvelli allra nauðsynlegra gagna.“

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir

Hins vegar væri verið að óska eftir að hinn nýji bæjarstjóri yrði ráðinn án þess að ráðningarsamningur lægi fyrir og án þess að bæjarráð hefði farið yfir efni slíks samnings. Sagði Halldóra Fríða því næst:

„Í raun og veru hefur enginn bæjarfulltrúi hér séð samninginn allavega ekki bæjarfulltrúar í minnihluta.“

Engin gögn

Sagði Halldóra Fríða að búið væri hins vegar að setja málið á dagskrá næsta fundar bæjarráðs sem fram fer á morgun, fimmtudag. Búið væri að senda út gögn vegna fundarins en þar á meðal væri hins vegar ekki að finna nein gögn sem tengdust ráðningu bæjarstjórans:

„Þannig að það er engin leið að kynna sér málin með þeim hætti heldur. Þannig að það er að okkar mati ekki þau vinnubrögð sem eiga að einkenna faglega og trausta stjórnsýslu hér í sveitarfélaginu.“

Sagði Halldóra Fríða að vissulega væru fordæmi fyrir því að bæjarstjórn Reykjanesbæjar staðfesti ráðningu bæjarstjóra með þessum hætti en þá hefði verið um endurráðningu að ræða án breytinga á ráðningarsamningi. Á hún þar væntanlega við Kjartan Má Kjartansson, forvera Vilhjálms, sem var endurráðinn bæjarstjóri tvisvar, eftir kosningar 2018 og 2022 en hann var fyrst ráðinn 2014 eftir að auglýst hafði verið eftir bæjarstjóra:

„En nú er verið að ráða nýjan bæjarstjóra og alls óljóst hvaða kröfur eru settar fram þar. Við höfum því engar upplýsingar um starfskjör, réttindi, starfslokaákvæði eða aðrar meginforsendur ráðningarsamnings. Ég skil ekki alveg hvert við erum að fara í þessum efnum því við erum ekki að flýta okkur í málum af þessari stærðargráðu og málið verður tekið til umfjöllunar í bæjarráði á fimmtudag og traust til okkar byggist á því að farið sé hér rétt með vald, verklag og ábyrgð og þá sérstaklega núna í upphafi nýs kjörtímabils.“

Sagði Halldóra Fríða að lokum og sagðist tala fyrir hönd alls minnihlutans að eðlilegt væri og ábyrgt að fyrir lægi fullunninn ráðningarsamningur og formleg umfjöllun bæjarráðs um slíkan samning færi fram áður en bæjarstjórn væri beðin um að staðfesta ráðningu hins nýja bæjarstjóra. Bar hún í kjölfarið upp tillögu um það.

Ráðinn

Margrét Þórarinsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem fyrr á fundinum var kjörin nýr forseti bæjarstjórnar og tók þá við fundarstjórn, sagði eftir ræðu Halldóru Fríðu að dagskrá bæjarstjórnarfundarins yrði fylgt og bar tillöguna um ráðningu Vilhjálms upp til atkvæðagreiðslu. Tillagan var samþykkt af fulltrúum meirihlutans en hafnað af fulltrúum minnihlutans. Sagði Margrét að bæjarráði væri falið að ganga frá ráðningu Vilhjálms.

Margrét Þórarinsdóttir Mynd: Skjáskot/Youtube.

Vilhjálmur tók því næst til máls og þakkaði fyrir traustið sem honum var sýnt. Hann þakkaði fráfarandi bæjarstjórn fyrir vel unnin störf sem og fovera sínum, áðurnefndum Kjartani Má Kjartanssyni, fyrir vel unnin störf. Sagðist Vilhjálmur hlakka til samstarfsins við hina nýkjörnu bæjarstjórn. Hét Vilhjálmur því að leggja sig allan fram í starfi. Hvað varðaði málsmeðferðina við ráðningu sína sagði Vilhjálmur að samkvæmt lögum færi bæjarstjórn með ráðningu bæjarstjóra:

„Ráðningin þarf að hafa farið fram svo að bæjarráð geti sinnt sínu hlutverki að klára þá ráðningarsamninginn.“

Sagðist Vilhjálmur að það væri alþekkt í stjórnsýslunni að tekin væri ákvörðun og svo öðru stjórnvaldi falin fullnaðarafgreiðsla. Sagði hann að málið yrði rætt á bæjarráðsfundi á fimmtudag.

Ekki frestað

Halldóra Fríða kom þá aftur upp í pontu og lagði fram bókun fyrir hönd minnihlutans. Í bókun minnihlutans eru gerðar alvarlegar athugasemdir við þau vinnubrögð meirihlutans að samþykkja ráðningu Vilhjálms sem bæjarstjóra án þess að fyrir lægi ráðningarsamningur. Um væri að ræða óeðlilega flýtimeðferð á einni mikilvægustu ákvörðun bæjarstjórnar:

„Bæjarfulltrúum er hér ætlað að staðfesta ráðningu bæjarstjóra og skuldbinda sveitarfélagið án þess að fyrir liggi upplýsingar um starfskjör, réttindi, starfslokaákvæði eða aðrar meginforsendur ráðningarsamningsins. Slík vinnubrögð samræmast hvorki kröfum um gagnsæi né vönduðum stjórnsýsluháttum við ráðningu æðsta stjórnanda sveitarfélagsins.“

Í bókuninni voru síðan endurtekin fyrri orð Halldóru Fríðu um að eðlilegra væri að fullunninn ráðningarsamningur færi fyrst til umfjöllunar í bæjarráði og lægi síðan fyrir áður en ráðning nýs bæjarstjóra væri staðfest af bæjarstjórn. Var síðan lagt til að ráðningunni yrði frestað en yrði það ekki samþykkt væri ekki annað hægt fyrir minnihlutann en að hafna ráðningu Vilhjálms enda væri það óábyrgt að samþykkja ráðninguna þar sem bæjarfulltrúar vissu ekkert um hver kjör hans væru og minnihlutinn gæti ekki tekið þátt í slíku.

Margrét bar síðan upp tillögu minnihlutans um að ráðningu Vilhjálms yrði frestað til atkvæðagreiðslu en henni var hafnað af meirihlutanum og var þá vikið að næsta máli á dagskrá.

Akureyri

Í ljósi ummæla Vilhjálms um að bæjarstjórn yrði að samþykkja ráðningu bæjarstjóra áður en bæjarráð gæti fjallað um ráðningarsamning vekur athygli að í gær fór einnig fram fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar á á Akureyri og þar var farin önnur leið í þessum efnum.

Þar var samþykkt að ráða Berglindi Ósk Guðmundsdóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins sem bæjarstjóra.

Fundargerð fundarins hefur ekki verið birt á heimasíðu bæjarins en Sindri St. Kristjánsson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, sem er í minnihluta, birtir hins vegar, á Facebook hluta af ræðu sinni á fundinum um ráðningu Berglindar og segir þar að fyrir hafi legið ráðningarsamningur sem meirihluti bæjarstjórnar hafi samþykkt en minnihlutinn hafnað. Gagnrýndi Sindri að Berglind hefði verið ráðin bæjarstjóri og sagði að fremur hefði átt að endurráða Ásthildi Sturludóttur, forvera Berglindar, eða auglýsa eftir bæjarstjóra.

Þórhallur Jónsson bæjarfulltrúi Akeyrarlistans, sem er einnig í minnihluta, segir á Facebook-síðu flokksins að minnihlutinn hafi lagt fram sameiginlega bókun og birtir hana í heild. Í bókuninni er gagnrýnt að Berglind Ósk hafi verið ráðin á sams konar kjörum og Ásthildur og vísað til þess að sú fyrrnefnda hafi mun minni reynslu af slíkum störfum en sú síðarnefnda.

Hvers vegna hægt var að leggja fyrir ráðningarsamning áður en ráðning Berglindar var samþykkt en ekki í tilfelli Vilhjálms er óljóst.

 

 

 

 

 

#bæjarstjóri #fyrir #ráðinn #vilhjálmur #þess


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/frettir/2026/6/3/vilhjalmur-radinn-baejarstjori-thess-ad-fyrir-laegi-radningarsamningur-eg-skil-ekki-alveg-hvert-vid-erum-ad-fara-thessum-efnum/

📰 Aðrar fréttir

Nokkrir látnir og særðir í bruna í kanadískri herstöð
📅 18.10.2026 👁️ 1
Nokkrir látnir og særðir í bruna í kanadískri herstöð
Yfirvöld í Kanada lýsa alvarlegu atviki sem leiddi til stórbruna í herstöð í Alberta sem stórslysi. Stjórnvöld hafa staðfest að nokkrir séu látnir og ...
Eignar Ingu Sæ­land plötutitilinn - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Eignar Ingu Sæ­land plötutitilinn - Vísir
Þetta segir hinn þrítugi tónlistarmaður Elvar Smári Júlíusson um nýju plötuna sína Hver og einn verður að ráða sínumnæturstað sem kom út 9. október en...
Flúði tára­gas lög­reglu í Nice - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Flúði tára­gas lög­reglu í Nice - Vísir
Greint hefur verið frá því að um 1.800 manns hafi verið handtekin á mótmælunum víða um Frakkland og um 500 lögreglumenn og slökkviliðsmenn séu slasaði...
Katrín Oddsdóttir: Seyðfirðingar eru sér á parti – hafa ekki lagst kylliflatir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Katrín Oddsdóttir: Seyðfirðingar eru sér á parti – hafa ekki lagst kylliflatir
Það hafði legið fyrir frá upphafi að klár meirihluti Seyðfirðinga var harðlega á móti því að sjókvíaeldi yrði leyft í Seyðisfirði. Í bænum er mikil gr...
Einar með viðvörun: „HÉR ÆTTI ENGINN AÐ VERA Á FERÐINNI Í KVÖLD!“
📅 18.10.2026 👁️ 1
Einar með viðvörun: „HÉR ÆTTI ENGINN AÐ VERA Á FERÐINNI Í KVÖLD!“
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur varar í Facebook-færslu eindregið við því að fólk verði á ferðinni á milli Hafnar í Hornafirði og Djúpavogs í kvöl...
Vara við uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis og skóla við hlið Reykjavíkurflugvallar
📅 18.10.2026 👁️ 1
Vara við uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis og skóla við hlið Reykjavíkurflugvallar
Bæði Isavia innanlandsflugvellir ehf. og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vara við áformum sem felast í tillögu um nýtt deiliskipulag fyrir hinn svokal...
Maðurinn sem lést á Gæsavatnaleið var íslenskur
📅 18.10.2026 👁️ 1
Maðurinn sem lést á Gæsavatnaleið var íslenskur
Maðurinn sem lést í slysi sem varð á Gæsavatnaleið norðan Vatnajökuls á föstudagskvöld var íslenskur og búsettur á Norðurlandi. Hann var á ferð með hó...
Ís­lendingur í Frakk­landi og ekki bjóða góðan dag - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Ís­lendingur í Frakk­landi og ekki bjóða góðan dag - Vísir
Fjallað er um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12.  Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna segir lyfjafyrirtæki auglýsa sjúkdóma til að komast...
„Ég elska Obbu“ - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
„Ég elska Obbu“ - Vísir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, var í ítarlegu viðtali á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun þar sem hún ræddi...
Vill fækka borgarfulltrúum um þriðjung
📅 18.10.2026 👁️ 1
Vill fækka borgarfulltrúum um þriðjung
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri vill að borgarfulltrúum verði fækkað úr 23 í 15. Þetta segir hún í aðsendri grein í Morgunblaðinu. Þar segir hún að m...
Upplausn andsetinna stjórnvalda
📅 18.10.2026 👁️ 2
Upplausn andsetinna stjórnvalda
Upplausn andsetinna stjórnvalda Throstur18. október 2026InnlendarLeave a Comment Andsetið Alþingi Þröstur Jónsson ritar að austan. Upplausn og villigö...
Orðið á götunni: Alþingisvaktinni hleypt af stokkunum?
📅 18.10.2026 👁️ 2
Orðið á götunni: Alþingisvaktinni hleypt af stokkunum?
Næturvaktin, Dagvaktin og Fangavaktin slóu í gegn á sínum tíma með ódauðlega persónu Georgs Bjarnfreðarsonar í forgrunni sem Jón Gnarr gæddi ævarandi ...
Parisians wake up to protest damage and looted shops
📅 18.10.2026 👁️ 2
Parisians wake up to protest damage and looted shops
Violence broke out across France on Saturday during the latest day of demonstrations against conditions in schools and the cost of living.
Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni - Vísir
Í Facebook-færslu segir slökkviliðið að 89 útköll á sjúkrabíla hafi verið skráð. Útköll á dælubíla voru þá sjö talsins og þar af þrjú vegna roktjóns. ...
Buggy safari operators face police checks over permits in Lanzarote
📅 18.10.2026 👁️ 0
Buggy safari operators face police checks over permits in Lanzarote
Buggy safari operators in Lanzarote face police checks after Teguise’s mayor admitted the council could not confirm whether companies using local rura...
Þor­gerður Katrín í ítar­legu við­tali - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Þor­gerður Katrín í ítar­legu við­tali - Vísir
En fyrst verður fjallað um vantraust og stífni í samskiptum ríkis og sveitarfélaga með Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra í Garðabæ og nýkjörnum formann...
Oddhvöss aldin í fyrsta sinn á Íslandi
📅 18.10.2026 👁️ 2
Oddhvöss aldin í fyrsta sinn á Íslandi
Í útjaðri Þingholtanna í Reykjavík gætir fréttnæmrar frjósemi. Í garði leikskólans Laufásborgar, hefur stærðarinnar tré, hrossakastanía, myndað aldin ...
Green Party leader Zack Polanski says he will not overturn Zionism motion
📅 18.10.2026 👁️ 2
Green Party leader Zack Polanski says he will not overturn Zionism motion
The Green Party leader said, while he wanted to amend it, the motion would stand until 2028.
„Ég held að maður megi semja svona við móður sína” - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
„Ég held að maður megi semja svona við móður sína” - Vísir
Guðrún er stórættuð kona, afar hennar eru Gylfi Þ. Gíslason fyrrverandi menntamálaráðherra og Bjarni Benediktsson eldri – forsætisráðherra. Hún fer yf...
Auðmýkt
📅 18.10.2026 👁️ 3
Auðmýkt
Auðmýkt Eitt helsta ein­kenni nútíma­mann­eskj­unnar er að vita allt best. Eitt helsta ein­kenni nútím­ans er upp­lýs­inga­óreiða, og eitt helsta ein­...
Illindi milli túlks og lögmanns drógu dilk á eftir sér fyrir rannsóknarlögreglukonu - „Ég fékk þvert nei“
📅 18.10.2026 👁️ 3
Illindi milli túlks og lögmanns drógu dilk á eftir sér fyrir rannsóknarlögreglukonu - „Ég fékk þvert nei“
Nefnd um eftirlit með lögreglu hefur beint því til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að sjá til þess framvegis að sakborningar fái úthlutað þeim verje...
Brian May receives surprise award as music stars light up Starmus opening in Tenerife
📅 18.10.2026 👁️ 3
Brian May receives surprise award as music stars light up Starmus opening in Tenerife
Brian May received a surprise honour for his environmental and conservation work as Starmus opened in Santa Cruz de Tenerife last night, Saturday 17th...
France protests: Burnt out cars and shattered glass on Paris streets after protests turn to riots and looting
📅 18.10.2026 👁️ 3
France protests: Burnt out cars and shattered glass on Paris streets after protests turn to riots and looting
Around 1,800 people were arrested after nationwide protests saw outbreaks of violence and vandalism.
Man, 80, who died in light aircraft crash near Loch Lomond named
📅 18.10.2026 👁️ 2
Man, 80, who died in light aircraft crash near Loch Lomond named
The flying instructor has been described as "a gentleman and an experienced aviator" by former students.
Útköll vegna hvassviðris og vatnsleka í gær
📅 18.10.2026 👁️ 3
Útköll vegna hvassviðris og vatnsleka í gær
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fór í sjö útköll í gær og í nótt, þar af að minnsta kosti þrjú vegna roktjóns. Þá var slökkvilið kallað út vegna vatns...
Ég upp­lifði mjög sterkt að ég væri að bregð­ast - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Ég upp­lifði mjög sterkt að ég væri að bregð­ast - Vísir
„Ég fer í reglubundna skimun í nóvember á síðasta ári,“ segir Sólveig Jónsdóttir, sem greindist með brjóstakrabbamein í maí. „Það sést ekki neitt og a...
Ísland á tímamótum hvað varðar mansal
📅 18.10.2026 👁️ 3
Ísland á tímamótum hvað varðar mansal
Lögregla rannsakaði þrettán mansalsmál í fyrra en fékk ábendingar um og kannaði 76 til viðbótar. 44 mansalsmál komu á borð Bjarkarhlíðar. Breskur sérf...
Three motorcyclists taken to hospital after collision with car in south Tenerife
📅 18.10.2026 👁️ 3
Three motorcyclists taken to hospital after collision with car in south Tenerife
Three motorcyclists were taken to hospital after a collision involving their bikes and a car in south Tenerife yesterday (Saturday), at 12.45pm on the...
Stella í or­lofi á stóra sviðið - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Stella í or­lofi á stóra sviðið - Vísir
Gamanmyndin Stella í orlofi var frumsýnd í íslenskum bíóhúsum 18. október 1986 og fagnar því fertugsafmæli í dag en í tilefni dagsins greinir Borgarle...
Reyndu allar mögulegar meðferðir til að bjarga fjögurra ára syni sínum
📅 18.10.2026 👁️ 3
Reyndu allar mögulegar meðferðir til að bjarga fjögurra ára syni sínum
Reyndu allar mögulegar meðferðir til að bjarga fjögurra ára syni sínum Fjölskyldan á góðri stunduBaxter lést aðeins fjögurra ára gamall Mynd: Instagra...
Frændinn sem braut á henni gengur enn laus - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Frændinn sem braut á henni gengur enn laus - Vísir
Árið 2022 hlaut móðurbróðir Sigríðar fimm ára fangelsisdóm í Landsrétti fyrir að hafa beitt hana kynferðislegu ofbeldi, en brotin stóðu yfir í ellefu ...
Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn - Vísir
Árið 2022 hlaut móðurbróðir Sigríðar fimm ára fangelsisdóm í Landsrétti fyrir að hafa beitt hana kynferðislegu ofbeldi, en brotin stóðu yfir í ellefu ...
Móðir ó­sátt við að bara apríl­börn fái ekki RS-bólu­efni - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Móðir ó­sátt við að bara apríl­börn fái ekki RS-bólu­efni - Vísir
Síðastliðinn vetur stóð foreldrum í fyrsta sinn til boða að þiggja bólusetningu gegn RS-veirunni fyrir börn yngri en sex mánaða. Nærri 90 prósent fore...
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Svamlað í lauginni
📅 18.10.2026 👁️ 3
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Svamlað í lauginni
Mynd Þjóðinni kemur ekki mikið við hvað þingmenn gera
Ó­létt 17 ára, kærastinn með krabba­mein, í fjórum vinnum, 
meistara­nám og flott starf - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Ó­létt 17 ára, kærastinn með krabba­mein, í fjórum vinnum, meistara­nám og flott starf - Vísir
Eins og saga dagsins gerir sannarlega. Í dag kynnumst við konu – Auði Hrefnu Guðmundsdóttur – varð ólétt 17 ára, átti þá kærasta sem fékk krabbamein, ...
Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu
📅 18.10.2026 👁️ 3
Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu
Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu Hamarsbraut 4 Bjart og vel skipulagt einbýlishús á tveimur hæðum í hjarta Hafnarfjarðar er ...
Hverjir standa að óeirðunum í Frakklandi? Sjónum beint að róttækum vinstrihópum og alþjóðlegum tengslanetum
📅 18.10.2026 👁️ 3
Hverjir standa að óeirðunum í Frakklandi? Sjónum beint að róttækum vinstrihópum og alþjóðlegum tengslanetum
Hverjir standa að óeirðunum í Frakklandi? Sjónum beint að róttækum vinstrihópum og alþjóðlegum tengslanetum Fréttin18. október 2026InnlendarLeave a Co...
Viðvaranir vegna hvassviðris um landið allt
📅 18.10.2026 👁️ 3
Viðvaranir vegna hvassviðris um landið allt
Spáð er vaxandi sunnan- og suðvestanátt í dag með vindhraða upp á 18-23 metra á sekúndu víða. Gular viðvaranir eru víða vegna hvassviðris en einnig er...
Hörð á­tök lög­reglu og mót­mælenda í París - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Hörð á­tök lög­reglu og mót­mælenda í París - Vísir
Í París kom til harðra átaka fram á kvöld við óeirðalögreglu sem beitti táragasi og vatnsbyssum á mannfjöldann. Kveikt var í byggingum í París og víða...
Police officer shot in foot in Nottingham city centre
📅 18.10.2026 👁️ 3
Police officer shot in foot in Nottingham city centre
A firearm has been recovered by officers after a man and a woman fled the scene, detectives say.
Tveir bókstafir sem urðu að milljörðum
📅 18.10.2026 👁️ 3
Tveir bókstafir sem urðu að milljörðum
Auðlindir heimsins taka á sig ýmsar myndir. Sum ríki hafa byggt auð sinn á olíu sem sótt er djúpt úr jörðu. Önnur reiða sig á gjöful fiskimið, frjósam...
Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vest­fjörðum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vest­fjörðum - Vísir
Þessar lægðir munu bera með sér hlýtt loft og úrkomu og stuðla að leysingum. „Mestri uppsafnaðri úrkomu er spáð á vestan- og sunnanverðu landinu. Eink...
Á­fram blautt og hvasst með gulum við­vörunum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Á­fram blautt og hvasst með gulum við­vörunum - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að kröpp lægð suðvestur í hafi fari allhratt norðaustur og verði skammt vestur af landinu seinnipartinn. Þá sé búis...
Rússar skutu niður 126 úkraínska dróna nærri Sankti Pétursborg
📅 18.10.2026 👁️ 3
Rússar skutu niður 126 úkraínska dróna nærri Sankti Pétursborg
Rússnesk yfirvöld segjast hafa skotið niður úkraínska dróna nærri Sankti Pétursborg í dag. Drónarnir hæfðu olíustöð og röskuðu flugi á einum umferðarþ...
Einn hand­tekinn vegna líkams­á­rásar í mið­bænum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Einn hand­tekinn vegna líkams­á­rásar í mið­bænum - Vísir
Tilkynnt var um einn í miðbænum með „hníf á lofti“ á skemmtistað. Hann var einnig handtekinn. Í dagbók kemur fram að einn hafi verið vistaður í nótt í...
NHS faces more challenging winter than normal, health secretary warns
📅 18.10.2026 👁️ 3
NHS faces more challenging winter than normal, health secretary warns
Yvette Cooper has announced £140m investment in England's urgent care system, after summer heatwaves piled pressure on the NHS.
Urgent plan needed to end 'corridor care' for children, health secretary says
📅 18.10.2026 👁️ 3
Urgent plan needed to end 'corridor care' for children, health secretary says
Yvette Cooper also announces £140m investment in England's urgent care system, ahead of winter.
Popúl­ismi og ein­angrunar­hyggja ógnar lofts­lagsað­gerðum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Popúl­ismi og ein­angrunar­hyggja ógnar lofts­lagsað­gerðum - Vísir
Johan Rockström er forstöðumaður Potsdam-loftslagsstofnunarinnar í Þýskalandi og vistfræðingur. Hann var leiðandi afl í að búa til ramma um vísindaleg...
Höfuðborgarsvæðið: 35% fleiri brot vegna gruns um fíkniefnaakstur
📅 18.10.2026 👁️ 3
Höfuðborgarsvæðið: 35% fleiri brot vegna gruns um fíkniefnaakstur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu skráði 1.311 brot vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna fyrstu níu mánuði ársins 2026. Það er 35% fjö...
Ísland „í miðpunkti breytinga á jörðinni“
📅 18.10.2026 👁️ 3
Ísland „í miðpunkti breytinga á jörðinni“
Ísland „í miðpunkti breytinga á jörðinni“ Heim­ur­inn er kom­inn yfir sjö af níu þol­mörkum jarðar. Pró­fess­or­inn Johan Rockström segir þró­un­ina á...