Hlutabréfaverð íslenska lyfjafyrirtækisins Oculis lækkaði skarplega á föstudag, eins og mbl.is greindi frá. Lækkunin hélt áfram eftir lokun markaða og það sem af er deginum virðist Oculis enn vera á niðurleið.
Á föstudag greindi Oculis frá því að prófanir á svokölluðum OCS-01 augndropum hefðu ekki gengið eins vel og til stóð og mun fyrirtækið því ekki sækja um leyfi fyrir lyfinu hjá Matvæla- og lyfjaeftirliti Bandaríkjanna.
Sérfræðingur á fjármálamarkaði bendir á að lækkunin á föstudag hafi byrjað áður en Oculis greindi opinberlega frá niðurstöðum prófananna.
„Bréfin tóku að lækka mjög mikið án þess að nokkrar fréttir hefðu komið frá fyrirtækinu og þegar dagslækkunin var komin upp í 25% lokaði kauphöllin í Bandaríkjunum á frekari viðskipti. Þetta bendir til að einhvers staðar hafi upplýsingar lekið út,“ segir viðmælandi mbl.is sem vill ekki láta nafns síns getið.
Hjá Nasdaq fara sjálfvirkir ferlar í gang ef hlutabréfaverð félags lækkar mjög hratt og verðþróunin virðist óeðlileg.
Viðskiptin voru mjög umfangsmikil og áætlar viðmælandinn að hlutir fyrir jafnvirði a.m.k. 1,5 milljarða króna hafi verið seldir á föstudag.
„Þetta er ekki gott og ég botna ekki í því hvernig þetta gat gerst. Þetta hlýtur að vera eitthvað sem verður skoðað nánar.“
Lækkunin í samræmi við tíðindin
Rétt fyrir hádegi í dag var hlutabréfaverð Oculis um helmingi lægra en við opnun markaða á föstudag og segir viðmælandi blaðsins að svona mikil verðlækkun sé ekki óvenjuleg þegar í hlut eiga ung fyrirtæki sem vinna að þróun nýrra lyfja.
„Við höfum séð fullt af sprotafyrirtækjum lækka niður um jafnvel 90% við svona tíðindi,“ segir hann.
Þar með er ekki sagt að Oculis sé á sömu leið en þó að OCS-01 droparnir hafi valdið vonbrigðum vinnur félagið áfram að þróun og prófunum á OCS-02 og OCS-05 við augnþurrki annars vegar og taugabólgu í auga hins vegar.
„Menn hafa talað um að mestu verðmætin gætu verið fólgin í OCS-05 en það er langur tími í að það lyf ljúki prófunum og við verðmat á svona fyrirtækjum eru fjárfestar m.a. að miða við líkindin á að lyf í þróun verði að vöru. Það áttu að vera 90% líkur á að OCS-01 færi í gegn, en líkurnar fyrir hin lyfin tvö þykja lægri.“