Björgunarsveitir og aðrir viðbragðsaðilar eru búnir að hafa í nógu að snúast í kvöld við leit og björgun.
„Það eru búin að vera frekar snúin og krefjandi verkefni í gangi og þau komu öll á sama tíma,“ segir Margrét Gunnarsdóttir, staðgengill upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar.
Óskað var eftir aðstoð vegna einstaklings sem slasaðist illa í göngu á Fjalljökli og fékk opið beinbrot. Aðstæður á vettvangi reyndust nokkuð krefjandi af því að jökullinn er svo sprunginn. Björgunarsveitin Kári í Öræfum kom að aðgerðinni. Göngumanninum var komið niður og í sjúkrabíl.
Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug síðan til móts við sjúkrabílinn, sótti göngumanninn og flutti til Reykjavíkur. Upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar staðfestir það.
Nokkrar björgunarsveitir komu að björgunaraðgerð í Emstrum vegna einstaklings í sjálfheldu. Sá er ekki slasaður en var í miklum bratta. Að aðgerðinni komu björgunarsveitirnar Dagrenning, Stjarnan og Víkverjar ásamt flugbjörgunarsveitinni á Hellu. Þá hélt hálendisvaktin í Landmannalaugum á vettvang.
Einstaklingurinn er kominn í þyrlu Landhelgisgæslunnar. Farið verður með hann í Bása.
Björgunarsveitir og Landhelgisgæslan koma að leit í sjónum undan Borgarnesi. Lögreglu barst tilkynning um að hugsanlega hefði sést til manneskju í sjónum en það þykir ekki staðfest. Björgunarsveitirnar Brák og Björgunarfélag Akraness koma að leitinni ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar.
„Við leitum af okkur allan grun,“ segir Margrét.