Það liggur enginn vafi á því að borgarbúar eru ósáttir við núverandi fyrirkomulag bílastæðamála í Reykjavík að sögn Björns Gíslasonar, varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Borgarstjórn samþykkti í dag tillögur nýs meirihluta um að endurskoða gjaldskyldutíma bílastæða í miðborginni, vinna að því að einfalda rafræna greiðslumáta fyrir bílastæði og fara yfir reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar.
„Þau voru ekkert að gera þetta“
„Tillögurnar leggjast mjög vel í mig, það voru engin mótmæli hjá okkur og mér líst mjög vel á þetta, þetta er bara frábært,“ segir hann í samtali við mbl.is.
Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt mikla áherslu á þessi mál í sinni kosningabaráttu. Að sögn Björns heldur minnihlutinn í borginni því fram að fráfarandi borgarstjórn hafi verið að undirbúa slíkar breytingar.
„Þeir voru ekkert að gera þetta, það er bara svoleiðis, við komum þessu bara í framkvæmd,“ segir Björn.
Fólk fellst á breytingarnar
Hann segir þessar tillögur þó aðeins fyrsta skrefið í átt að þeim breytingum sem þurfa að verða á bílastæðamálum borgarinnar. Nóg sé enn af verkefnum í þeim málum.
Telurðu að fólk sé ósátt við núverandi fyrirkomulag?
„Já, ekki spurning, við fáum þessa glimrandi kosningu og það er alveg augljóst að fólk hafi fallist á það sem við vorum að leggja fram í þessum bílastæðamálum.“