Andy Burnham er nýr forsætisráðherra Bretlands. Hann er sá sjöundi sem tekur við síðan Bretland yfirgaf Evrópusambandið og sá fjórði síðan Karl konungur tók við árið 2022.
Burnham boðar víðtækar breytingar á bresku samfélagi.
„Við gerum þetta augnablik að vatnaskilum fyrir Bretland og köllum fram mestu breytingar síðustu 40 ára með nýju pólitísku og efnahagslegu fyrirkomulagi,“ sagði Burnham í dag.
Hér er umfjöllun um embættistöku Burnhams úr sjónvarpsfréttum.