Ný gögn frá mennta- og barnamálaráðuneytinu sýna verulegan mun á námsárangri eftir grunnskólum og ósamræmi í einkunnagjöf milli skóla. Afleiðingin er sú að tækifæri barna ráðast í auknum mæli af því hvaða grunnskóla þau sóttu fremur en getu þeirra og árangri.
Þetta segir í nýrri úttekt Viðskiptaráðs á þeirri skýrslu sem ráðuneytið birti í síðustu viku og fjallað var um í Morgunblaðinu og á mbl.is.
Bent er á að samræmdir mælikvarðar og aukin greining á námsárangri séu nauðsynleg til að tryggja jafnræði innan menntakerfisins.
Miklu munar
Úttektin leiðir enn frekar í ljós það sem ráða mátti af skýrslunni, það er að verulegur munur er á því hversu hátt hlutfall nemenda lýkur framhaldsskóla eftir því úr hvaða grunnskóla þeir koma, eins og sjá má hér að ofan.
Þegar horft er til Fellaskóla höfðu til að mynda aðeins 25% nemenda lokið framhaldsskóla þremur árum eftir lok grunnskóla, samanborið við 96% nemenda úr Smáraskóla.
„Þessi munur bendir til þess að nemendur búi við afar ólík tækifæri í grunnskólakerfinu,“ segir í úttekt ráðsins.
Að óbreyttu sé hætta á að grunnskólakerfið þróist áfram í átt að félagslega aðgreindum skólum, þar sem búseta og grunnskóli hafi ráðandi áhrif á framtíðarmöguleika barna. Það dragi úr félagslegum hreyfanleika og grundvallarsjónarmiði um jafnræði í grunnskólakerfinu.
Grunnskólaeinkunnir ekki sambærilegar
Ráðið greindi einnig samband milli lokaeinkunnar nemenda í stærðfræði við lok grunnskóla annars vegar og aðaleinkunnar þeirra úr framhaldsskóla hins vegar.
Greiningin byggir á nýjum gögnum ráðuneytisins og nær til skóla þar sem umframaðsókn var eftir skólavist.
Niðurstöðurnar eru sagðar benda til þess að grunnskólaeinkunnir séu ekki sambærilegar milli skóla og að það skapi ójafnræði við inntöku í framhaldsskóla.
„Gögnin sýna annars vegar að nemendur geta fengið mismunandi grunnskólaeinkunnir en síðar náð sambærilegum árangri í framhaldsskóla. Hins vegar sýna þau að nemendur með sömu grunnskólaeinkunn geta síðar náð afar misjöfnum árangri í framhaldsskóla,“ segir í úttektinni.
Skapast augljóst ójafnræði
Þetta bendi til þess að einkunnir endurspegli ekki sömu færni milli skóla.
Þegar ósamræmdar einkunnir séu síðan notaðar til að úthluta takmörkuðum plássum í eftirsótta framhaldsskóla, skapist augljóst ójafnræði.
„Nemendur geta þannig orðið af tækifærum vegna þess hvaða grunnskóla þeir sóttu fremur en raunverulegrar getu eða námsárangurs.“
Samræmdir mælikvarðar og jafnræði skila árangri
Ráðið segist fagna því að fram séu komin gögn sem varpi ljósi á stöðuna í menntakerfinu.
Um langt skeið hafi skortur á gögnum takmarkað möguleika til að meta stöðu íslenskra skóla og bregðast við þeim vanda sem birtist meðal annars í lökum námsárangri í alþjóðlegum samanburði.
„Af gögnunum er ljóst að þörf er á að taka upp samræmda mælikvarða að nýju við lok grunnskóla og að framhaldsskólum verði heimilt að taka mið af þeim við innritun. Með því mætti stuðla að því að nemendur séu metnir á sambærilegum forsendum, óháð því hvaða grunnskóla þeir sækja,“ segir í úttektinni.
Samræmdir mælikvarðar forsenda jafnræðis
Jafnframt sé nauðsynlegt að greina betur ástæður þess að svo mikill munur sé á námsárangri og útskriftarhlutfalli milli grunnskóla.
Meginmarkmið skólakerfisins hljóti að vera að tryggja öllum börnum jöfn tækifæri, óháð búsetu eða bakgrunni.
„Framtíðartækifæri barna eiga ekki að ráðast af því hvaða grunnskóla þau sóttu heldur getu þeirra og árangri.
Samræmdir mælikvarðar, aukin gagnasöfnun og markvissar úrbætur eru forsenda þess að tryggja jafnræði innan menntakerfisins á ný.“

