Velferðarnefnd Alþingis leggur til að ekki verði gengið jafnlangt í breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar og boðað hafði verið.
Nefndin leggur til að réttur til atvinnuleysistrygginga ávinnist hlutfallslega eftir 7 mánaða starf á innlendum vinnumarkaði og að bótatímabil verði stytt úr 30 mánuðum í 24.
Ríkisstjórnin boðaði verulegar skerðingar á atvinnuleysistryggingum fyrir rúmu ári.
Samkvæmt frumvarpi félags- og húsnæðismálaráðherra átti að stytta bótarétt úr 30 mánuðum í 18. Þá átti réttur til atvinnuleysisbóta að vera tryggður eftir 12 mánaða starf á innlendum vinnumarkaði, en samkvæmt gildandi lögum ávinnst slíkur réttur hlutfallslega í samræmi við lengd starfstíma eftir einungis þrjá mánuði.
Forsvarsmenn verkalýðsfélaganna gagnrýndu frumvarpið harðlega og sögðu ekkert samráð hafa verið haft við aðila vinnumarkaðarins.
Í meðferð sinni fékk velferðarnefnd á fund sinn gesti, meðal annars frá verkalýðshreyfingunni, Samtökum atvinnulífsins og sveitarfélögunum, og tók einnig tillit til 17 umsagna sem bárust í samráðsgátt.