Milt veður einkennir landið í dag. Það gengur í austan- og norðaustanátt, 5-13 metra á sekúndu, bjart með köflum, en stöku síðdegisskúrir suðvestanlands.
Hiti verður á bilinu 8 til 18 stig, hlýjast á Norður- og Vesturlandi. Í kvöld bætir í vind syðst á landinu.
Viðrar vel til hátíðahalda í höfuðborginni
Á morgun, þjóðhátíðardaginn, er spáð stífri norðaustanátt með rigningu og svölu veðri um landið austanvert. Vestanlands ætti hins vegar að verða þurrt að mestu og sæmilega milt.
Á höfuðborgarsvæðinu viðrar líklega vel til hátíðarhalda því þar er ólíklegt að vindur nái sér á strik, segir í hugleiðingum veðurfræðings.
Hiti verður á bilinu 6 til 15 stig, mildast suðvestantil.