Vaxandi lægð vestur af Reykjanesi sendir regnsvæði austur yfir allt landið í dag. Á norðaustanverðu landinu verður þurrt að mestu fram á síðdegið. Vindur verður hægur víðast hvar nema norðvestan til þar sem spáir 8 til 13 metrum á sekúndu.
Þar gætu allhvassir strengir við fjöll verið varasamir ökumönnum á bílum sem taka á sig mikinn vind.
Hitinn verður á bilinu 8 til 16 stig í dag, hlýjast á Austurlandi.
Sama lægð stýrir veðrinu á morgun. Þá má búast við rigningu á öllu landinu en úrkomulítið á Vesturlandi síðdegis.
Það má víða búast við norðaustan strekkingi á morgun. Allhvassir strengir geta látið á sér kræla í fleiri landshlutum, til dæmis á Vesturlandi og við suðausturströndina. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast suðvestan til.
Vindur, úrkoma og vosbúð
Lægðin hefur enn áhrif á veðrið á laugardag. Þá spáir stífri norðan- og norðaustanátt með rigningu og köldu veðri norðan- og austanlands en úrkomulítið suðvestan til.
Veðurfræðingur Veðurstofunnar vekur að lokum athygli á því að veðrið á morgun og á laugardag „er ekki áskjósanlegt til fjallaferða vegna vinds, úrkomu og vosbúðar.“