Varnarmálaráðherra Eistlands, Hanno Pevkur, sagði af sér í gær vegna rannsóknar á ástæðum þess að skotfærapöntun gerð árið 2024 ætluð Úkraínu barst aldrei þangað.
Eistar höfðu pantað og greitt fyrir skotfæri að verðmæti sjötíu milljónir evra gegnum indverskt fyrirtæki sem hafði engan bakgrunn í slíkum viðskiptum.
Ríkisendurskoðandi komst að þessu misræmi og ríkissaksóknari hóf í kjölfarið sakamálarannsókn gegn yfirmönnum ráðuneytisins. Pevkur segist í færslu á Facebook engan beinan þátt hafa átt í viðskiptunum en sem ráðherra axli hann sína ábyrgð með afsögn.