Donald Trump Bandaríkjaforseti sagðist ekki hafa verið hræddur þegar vopnaður árásarmaður skaut úr byssu á kvöldverði samtaka blaðamanna Hvíta hússins í Washington í fyrrinótt. Þetta sagði hann í viðtali í fréttaskýringarþættinum 60 minutes í gærkvöld. Þáttarstjórnandinn, Norah O'Donnell, spurði Trump út atburði kvöldsins og hvort hann hefði verið skotmark. Trump sagðist ekki vita hvort hann hefði verið skotmark árásarmannsins en maðurinn væri líklega mjög veikur.
Vildi vita hvað gengi á
Forsetinn var spurður af hverju það tók svona langan tíma að koma honum af sviðinu þar sem hann sat. JD Vance varaforseti var dreginn mun fyrr burt. Trump sagði að hann hefði ekki gert lífvörðum sínum auðvelt fyrir og ekki hlýtt þeim strax þegar hann var beðinn um að fara niður á gólf. Hann hafi viljað vita hvað gengi á en farið að fyrirmælum öryggisvarða þegar hann áttaði sig á að eitthvað slæmt væri að gerast.
O'Donnell spurði Trump út í samsæriskenningar um að skotárásin hefði verið sviðsett. Hann blés á allar slíkar vangaveltur. Það væru veikir einstaklingar sem dreifðu samsæriskenningum og venjulega færu þær að heyrast nokkrum mánuðum eftir tiltekna atburði.
Áfram ósammála fjölmiðlum um margt
Trump var heiðursgestur á kvöldverðinum og þetta er í fyrsta sinn sem hann þiggur boð á kvöldverðinn. Hann hefur ítrekað gagnrýnt fjölmiðla og O'Donnell spurði hvort afstaða hans til fjölmiðlafólks væri breytt eftir þetta kvöld. Hann svaraði spurningunni ekki beint, sagði að hann og fjölmiðlafólk og Demókratar væru ósammála um margt svo sem glæpi og landamæravörslu.
Þegar O'Donnell reyndi að fá skýrari svör fór Trump að tala um að hann vildi að konur kepptu í íþróttum og að hann vildi ekki sjá karla keppa gegn konum í íþróttum. Afstaða hans væri skýr varðandi margt og ólíklegt að það myndi breytast. Hann og fjölmiðlar væru því ósammála um margt. Hann hefði þó fengið fljótt upplýsingar um það sem gerðist í kvöldverðarboðinu og þar hefði verið eins konar bræðralag sem hann hefði ekki séð lengi. Það hefði verið ánægjulegt að sjá.
Þá fór hann að tala um salinn sem er í byggingu við hlið Hvíta hússins og að þar yrði hámarksöryggi og fullkominn vettvangur fyrir kvöldverð eins og þennan.
Hægt er að lesa viðtalið við Bandaríkjaforseta í heild sinni á vefsíðu CNN.