Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir Rússa hafa í hyggju að ráðast með drónum og eldflaugum á bandamenn Úkraínu. Leyniþjónustugögn bendi til þessa.
Spenna hefur aukist milli Rússa og Evrópuríkja sem styðja Úkraínu síðustu mánuði. Tusk sagði í ræðu á pólska þinginu í gær að samkvæmt mati leyniþjónustu landsins væru Rússar með áætlanir um að ráðast gegn Póllandi og öðrum ríkjum með drónum og eldflaugum.
Skeytin gætu þannig lent innan landamæra NATO-ríkja í austurhluta Evrópu, en Rússar borið því við að það hefðu verið óviljaverk.
Markmiðið að veikja samheldni NATO
Markmiðið væri að veikja samheldni NATO og grafa undan trú aðildarríkja á fimmtu grein NATO-sáttmálans, sem kveður á um að árás á eitt bandalagsríki jafngildi árás á öll.
Tusk er í Úkraínu í dag á fundi átta ríkja sem eiga landamæri að Karpatafjöllum. Þau eru: Pólland, Úkraína, Tékkland, Rúmenía, Ungverjaland, Austurríki og Serbía.
Robert Fico, forsætisráðherra Slóvakíu og einn einarðasti bandamaður Vladimírs Pútín Rússlandsforseta meðal leiðtoga NATO-ríkja, varaði við því í gær að Evrópa væri nær því nú en nokkru sinni að dragast inn í stríðið og hvatti stjórnmálamenn til að leita friðar.
Ríkin átta funda í vesturhluta Úkraínu í dag og búist er við sameiginlegum blaðamannafundi klukkan 16:30 að íslenskum tíma.