Orðrómur um að söngkonunni Shakiru hafi verið skipt út fyrir staðgengil við opnunarhátíð heimsmeistaramótsins í knattspyrnu í gær hefur farið eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla.
Shakira, 49 ára gömul, steig á svið við opnun HM 2026 á Azteca-leikvanginum í Mexíkóborg í gær þar sem hún flutti opinbert lag mótsins, Dai Dai, ásamt tónlistarmanninum Burna Boy.
Sýningin var litrík og glæsileg, með flugeldum, dansatriðum og risastórri eftirlíkingu af HM-bikarnum á miðjum leikvanginum.
Það sem vakti hins vegar sérstaka athygli áhorfenda var að Shakira var með dökk sólgleraugu allan tímann á sviðinu. Í kjölfarið fóru að birtast fjölmargar færslur á samfélagsmiðlinum X þar sem notendur veltu því fyrir sér hvort konan á sviðinu hefði í raun verið söngkonan sjálf.

„Hvað er í gangi með Shakiru? Hún leit út eins og allt önnur manneskja miðað við hvernig hún leit út fyrir nokkrum vikum í Rio de Janeiro. Er þetta staðgengill?“ skrifaði einn notandi.
Annar taldi að aðeins þrjár skýringar kæmu til greina: „Annaðhvort var þetta ekki Shakira heldur staðgengill, eða hún hefur farið í fegrunaraðgerð, eða hún var einfaldlega of mikið máluð.“
Sumir gengu enn lengra og sögðu líkamsbyggingu flytjandans ekki passa við Shakiru. „Andliti er hægt að breyta með förðun, en líkamslínurnar sýna greinilega að þetta er ekki sama manneskjan,“ skrifaði einn netverji.
Ekki eru þó allir sannfærðir um kenninguna. Fjölmargir aðdáendur söngkonunnar hafa bent á að greinilegt ör á enninu sjáist á flytjandanum, sem þeir segja vera eitt af einkennum Shakiru.
„Eftir ítarlega rannsókn á orðrómnum segja sérfróðir aðdáendur að þetta sé sannarlega Shakira. Hún virðist hærri vegna þess að hún er í skóm með þykkum sóla og lítur grennri út en áður,“ skrifaði einn notandi.
Annar bætti við: „Við sem höfum fylgst með henni í mörg ár þekkjum örið á enninu, lögun tannanna og fleiri smáatriði. Hættið að sjá hluti sem eru ekki til staðar.“
Sjálf hefur Shakira ekki tjáð sig um orðróminn.