Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar og oddviti Framsóknarflokksins í bæjarfélaginu, segir síðustu daga hafa verið krefjandi og að margt hafi verið sagt um hans persónu sem hann taki nærri sér. Senn líður að því að Valdimar láti af störfum sem bæjarstjóri.
Frá þessu greinir Valdimar með færslu á Facebook en mikið hefur gengið á við myndun nýs meirihluta í Hafnarfirði. Í síðustu viku slitu sjálfstæðismenn meirihlutaviðræðum við Framsókn og var ástæðan sögð vera trúnaðarbrestur.
Í kjölfarið náðu Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking samkomulagi um meirihlutasamstarf í Hafnarfirði.
„Síðustu dagar hafa verið krefjandi“
„Nú líður að því að ég láti af starfi sem bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Það hafa verið í senn forréttindi og heiður að fá tækifæri til að gegna þessu starfi. Í umboði ykkar og fyrir ykkur. Ég geng stoltur frá borði. Stoltur af því hvernig ég tókst á við þetta skemmtilega verkefni, stoltur yfir því að hafa náð að breyta ásýnd bæjarstjórastarfsins og færa það nær fólkinu en fyrst og fremst stoltur og þakklátur fyrir það eitt að hafa fengið að starfa með og fyrir ykkur,“ skrifar Valdimar í færslu sinni.
„Síðustu dagar hafa verið krefjandi. Margt sem hefur verið sagt um mig og mína persónu. Orð sem ég tek að sjálfsögðu nærri mér. En allir hafa rétt á sinni skoðun og að tjá hana. Ég sjálfur hef tamið mér það að sýna öllum virðingu í orði og verki, ég er orðvar og legg áherslu á heiðarleika og einlægni. Það eru eiginleikar sem ég er stoltur af og hafa einkennt öll mín störf hvort sem það er skólastjóri, bæjarfulltrúi eða bæjarstjóri.
Við í Framsókn unnum afar góðan sigur í kosningunum þann 16. maí. Bættum við okkur 11% fylgi og einum bæjarfulltrúa. Framsókn mun halda áfram að vinna vel og af heilindum fyrir ykkur. Því getið þið treyst.“
Mun halda áfram að vera úti um allt í Hafnarfirði
Í færslunni óskar þó Valdimar nýjum meirihluta og verðandi bæjarstjóra alls hins besta í þeirra störfum og bætir við að allir séu saman í því verkefni að vinna vel fyrir Hafnarfjörð og íbúa bæjarfélagsins.
Þá taki nú við hjá honum nokkurra vikna frí sem hann mun nýta með fjölskyldu sinni.
„Ég kveð ykkur með hlýju, virðingu og bjartsýni fyrir hönd Hafnarfjarðar. Ég mun halda áfram að vera út um allt í Hafnarfirði með ykkur Hafnfirðingum enda hvergi betra að vera.“