Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, segir aðspurður að hann væri uggandi ef hann væri bóndi vegna þeirra þriggja innbrota sem hafa verið gerð í ræktunarbú á skömmum tíma.
„Auðvitað þurfa [bændur] að vakta sín bú. Maður veit ekkert hvað gerist næst ef þessir menn ganga lausir,“ segir hann.
Enn er unnið að því að veiða strokuminka í Mosfellsdal. Hilmar segir færri ábendingar hafa borist um lausa minka í nótt en búist var við.
„Ástandið er talsvert betra. Miðað við þessar ábendingar sem bárust eða bárust ekki í nótt teljum við að staðan sé þokkalega góð.“
Ljóst er að verkefninu verður fram haldið næstu vikur eða mánuði. „Við munum fylgja þessum mjög vel eftir.“