El Nino-veðurfyrirbærið gæti verið mjög öflugt næstu mánuði og á líklega eftir að hafa áhrif á veður víða um heim alveg fram í febrúar. Alþjóðaveðurfræðistofnunin sagði í dag að fyrirbærið eigi eftir að færast í aukana á næstu mánuðum og hafa mikil áhrif á rigningu og hitastig og þar með hættuna á flóðum, þurrkum og öfgum í hita.
Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði í dag að El Nino yrði með versta móti. „Sjávarhitinn fer hækkandi, hitastig rís og heimurinn stendur frammi fyrir hættunni á öfgum í veðri.
Celeste Saulo, yfirmaður Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar, sagði að El Nino gæti orðið öflugri en nokkur dæmi eru um síðan mælingar hófust.
Þrír fellibyljir eru í gangi á Kyrrahafi og er fátítt að svo margir fellibyljir gangi yfir á sama tíma.
„El Nino skapar aðstæðurnar fyrir þessa storma, sem magnast upp af hlýjum sjó,“ sagði Julia Cole, loftslagsvísindamaður við Háskólann í Michigan, í viðtali við AFP. „Þegar Kyrrahafið er hlýrra en venjulega fjölgar sterkum stormum.“