Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur hafnað kröfu einstaklings sem leigði bíl af ónefndri bílaleigu um endurgreiðslu og bætur frá fyrirtækinu. Hafði viðkomandi velt bílnum og kennt um að hann hefði verið bilaður án þess að bílaleigan hefði nokkuð gert í því. Hins vegar þóttu gögn málsins benda til að leigutakinn hafi ekki sýnt nægilega aðgæslu við aksturinn, ekið of hratt og ekki tekið mið af þeim erfiðum aðstæðum sem voru á svæðinu.
Reyndi að fá endurgreiðslu og bætur eftir að hafa velt bílaleigubíl - Lögregluskýrsla varð honum að falli