Bótóxmeðferðir í fegrunarskyni njóta mikilla vinsælda um allan heim og Ísland er þar engin undantekning. Einungis tilteknir sérfræðilæknar mega ávísa bótoxi hér á landi og eingöngu tilteknir heilbrigðisstarfsmenn, það er læknar og hjúkrunarfræðingar, mega veita fegrunarmeðferðir sem fela í sér inndælingu efna.
Miðað við ásýnd á samfélagsmiðlum virðist framboð á bótoxmeðferðum eftir óhefðbundnum leiðum aukast, það er meðferðir sem eru til dæmis veittar í heimahúsum eða á snyrtistofum af aðilum sem hafa ekki leyfi til að veita slíka meðferð.
Rúna Hauksdóttir forstjóri Lyfjastofnunar segir að stofnuninni hafi verið bent á aukið framboð af þessu tagi og að hún vari eindregið við slíkum meðferðum.
„Bótox er vandmeðfarið efni og fólk þarf að vera vakandi fyrir því að ef það er að fara annað en til sérfræðinga hafa þau ekki neinn bótarétt og líka þú veist ekkert hvernig bótúlín þetta er og hvort þetta sé hreint efni.“
Í byrjun september voru sex manns lagðir inn á spítala í Danmörku með einkenni alvarlegrar eitrunar eftir bótoxmeðferð. Fólkið hafði allt hlotið meðferð hjá óviðurkenndum aðilum, einhverjir í heimahúsi.
„Bótóxeitrun getur meðal annars haft áhrif á sjón, á getu þína til að tala og kyngja. Þetta er auðvitað lömun sem þetta lyf veldur. Það alvarlegasta er að fólk á til dæmis erfitt með að draga andann,“ segir Rúna.
Hún segir að Lyfjastofnun sjái ekki aukna notkun af bótóx í skráðum lyfjum en það bendi margt til þess að það sé flutt þetta inn ólöglega.
„Undir okkur heyrir ef það koma upp aukaverkanir með lyf sem eru með markaðsleyfi. Ef þetta er einhvers konar önnur notkun þá er engin leið fyrir okkur að vita það. Við erum að reyna að brýna fyrir fólki að fara einungis í meðferð hjá viðurkenndum aðilum.“
Hún segir að Lyfjastofnun reyni að fylgjast með þessu eins og innflutningi á öðrum ólöglegum lyfjum, til dæmis peptíðum. Tollgæslan hefur lagt hald á þúsundir glasa af ólöglegum peptíðum sem reynt var að smygla hingað til lands síðasta árið.
Rúna segir að fólk panti þetta af alls konar síðum og að einhverjar þeirra séu með íslenskt lén.
Fjölmiðlar hafa margoft fjallað um notkun fylliefna í fegrunarskyni og skort á eftirliti með starfseminni. Lýtalæknar hafa meðal annars bent á að fjöldi sjúklinga leiti til þeirra eftir misheppnaðar meðferðir í heimahúsi eða á snyrtistofum.
Ekki staðurinn til að spara á
Margir leita annað en til húð- og lýtalækna þar sem fylliefni og bótóxmeðferðir eru dýr. Töluverður verðmunur er á meðferðinni hjá læknum og á snyrtistofum. Algengur skammtur, sem er einn millilítri, hjá húð- og lýtalæknum getur verið á bilinu 60-80 þúsund krónur.
Í umfjöllun fréttastofu frá 2022 kom fram að sams konar meðferð hjá aðilum sem auglýstu ísprautun fylliefna á samfélagsmiðlum kostaði frá 25 þúsund krónum.
Rúna segir ekki ráðlagt að reyna að spara einhverja þúsund kalla í bótóxmeðferð.
„Nei, bara absalút ekki þar sem þú átt að gera það.“
„Þetta lyf er auðvitað ekki bara notað í fegrunarskyni. Það eru ábendingar fyrir lyfinu, það er notað við til dæmis við taugakrampa, mígreni, þvagblöðruvandamálum, óhóflegri svitamyndun og einnig í fegrunarskyni. Það er almennt mjög mikilvægt að fólk leiti til þeirra aðila sem hafa til þess réttindi við þessar meðferðir.“
Í byrjun síðasta árs staðfesti Alma Möller heilbrigðisráðherra nýja reglugerð sem kveður á um takmarkanir á útlitsbreytandi meðferðum með fylliefnum. Markmiðið með reglugerðinni var að tryggja öryggi þeirra sem undirgangast meðferð með fylliefnum sem er sprautað eða komið með öðrum hætti fyrir í eða undir húð, í vöðva eða annan vef.
Rúna gat ekki svarað því hvort að reglugerðin hefði hjálpað til við að bregðast við þeim vanda sem er uppi.
„Það er erfitt fyrir okkur að meta það. Ráðuneytið þarf að svara fyrir það. En það er erfitt að meta þetta því það þarf líka að spyrja: Hefur orðið meiri eftirspurn eftir þessu síðan í fyrra?“