Eigendum húss í Hólahverfi í Reykjavík varð ekki að ósk sinni þegar þeir fóru fram á að byggingarfulltrúinn í Reykjavík gæfi út leyfi fyrir framkvæmdum sem þegar var búið að ráðast í. Útbúnar höfðu verið fimm nýjar íbúðir í sérbýli sem reist var 1973.
Eigendurnir sögðu að húsinu hefði verið breytt 1998 en byggingarstjóri sagði að þar sem ekkert leyfi hefði verið gefið fyrir breytingunni og að hún væri umfram leyfilega nýtingu yrði að breyta húsinu aftur til fyrra forms. Það átti að gera innan 60 daga, annars legðust dagsektir á eigendurna.
Þetta sættu eigendurnir sig ekki við og kærðu niðurstöðuna til úrskurðarnefndar um umhverfis- og auðlindamál.
Úr 287 fermetrum í 430
Í umfjöllun nefndarinnar kemur fram að miðað við lóðarstærð og nýtingarhlutfall megi húsið að hámarki vera 287 fermetrar. Nú gefi teikningar til kynna að það sé orðið 429,5 fermetrar eftir að kjallari var grafinn út og honum breytt í íbúðir. Eins hafi skipulagt leyft að ein aukaíbúð yrði skipulögð en þær séu orðnar fimm talsins.
Fjórar íbúðir voru útbúnar í kjallaranum og ein í bílskúr.
Eigendur hússins töldu sig ekki geta breytt því til fyrra forms á þeim tíma sem þeim var gefinn. Þeir bentu á að þeir væru með ótímabundna samninga við fólk um leigu, þar á meðal skjólstæðinga félagsþjónustu Reykjavíkurborgar. Þeim samningum þyrfti að segja upp með að lágmarki 12 mánaða fyrirvara. Þeir sögðu að auki ekki hægt að gera allar breytingarnar sem byggingarfulltrúi krafðist á 60 dögum.
Tímamörkin of þröng
Úrskurðarnefnd felldi tímamörkin á ákvörðun byggingarfulltrúa úr gildi. Hún sagði rétt að taka mið af því hversu miklar framkvæmdir þyrfti að ráðast í og að íbúðirnar væru í útleigu og um hana giltu lögbundnir uppsagnarfrestir. Nefndin taldi tímafrestinn, 60 daga, því ekki standast meðalhófsreglu og felldi hann úr gildi.
Nefndin benti eigendum einnig á að þeir gætu sótt um byggingarleyfi vegna breytinga á kjallaranum enda hefði slíkt leyfi verið veitt í öðru húsi í sömu götu. Í báðum tilfellum var grafið út úr sökkulrými í kjallara.
Hjólaskýli mátti standa
Úrskurðarnefnd hafnaði einnig kröfu eiganda annarrar fasteignar sem var ósáttur við að hjólaskýli á næstu lóð yrði ekki fjarlægt. Það var reist án allra leyfa fyrir nokkrum árum, bak við atvinnuhúsnæði í Skipholti. Byggingarfulltrúi taldi að þar sem yfir 20 metrar væru frá hjólaskýlinu að atvinnuhúsnæði við Laugaveg væri lítil hætta á að eldur bærist milli bygginga og að öryggis- og almannahagsmunir krefðust þess ekki að skýlið yrði fjarlægt.