Utanríkisráðherra Norður-Kóreu, Choe Son Hui, fór í opinbera heimsókn til Rússlands í gær. Ríkisfjölmiðill í Norður-Kóreu greindi frá heimsókninni en utanríkisráðherrann fer til fundar við Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússa.
Rússland og Norður-Kórea undirrituðu varnarmálasamning þegar Vladimír Pútín heimsótti Pyongyang árið 2024. Norður-Kórea hefur sent Rússum flugskeyti, hergögn og þúsundir hermanna til að berjast gegn Úkraínuher.
Greinendur segja að Rússar leggi á móti til fjárhagslega aðstoð, hernaðarlega tækni, matvæli og orku til Norður-Kóreu sem er einangrað land á alþjóðasviðinu.
Rússneski varnarmálaráðherrann Andrei Belousov og fleiri háttsettir menn heimsóttu Pyongyang í apríl. Þá ræddu þjóðirnar um að styrkja hernaðarleg tengsl sín enn frekar. Belousov sagði þá að Rússar væru tilbúnir til að undirrita samstarfsáætlun fyrir árin 2027–2031.
Bæði Suður-Kórea og Evrópusambandið hafa fordæmt samstarfið milli landanna.