Evrópusambandið hefur samþykkt að færa aðildarviðræður við Úkraínu á næsta stig í kjölfar þess að ráðamenn í Ungverjalandi tilkynntu að þeir ætli ekki lengur að beita neitunarvaldi sínu gegn Úkraínu.
Síðan formlegar viðræður hófust í júní 2024 hefur ekkert þokast vegna andstöðu Victor Orbans, þáverandi forsætisráðherra Ungverjalands. Peter Magyar, nýr forsætisráðherra, gaf það til kynna fljótlega eftir kosningasigur sinn í apríl að hann muni með ánægju koma skriði á aðildarviðræðurnar um leið og þjóðirnar tvær leystu úr útistandandi ágreiningsefnum.
Magyar tilkynnti í dag að „sögulegt samkomulag“ hefði náðst við Úkraínu um réttindi minnihlutaþjóðarbrots Ungverja í Úkraínu, mál sem þjóðirnar hafa lengi deilt um. Þar með ætli Ungverjaland ekki lengur að standa í vegi fyrir að Úkraína opni fyrsta kafla aðildarviðræðnanna við Evrópusambandið.
Magyar tók þó fram að Ungverjaland styðji ekki að Úkraína fái flýtimeðferð og að Ungverjaland muni halda þjóðaratkvæðagreiðslu um inngöngu Úkraínu nái landið að ljúka aðildarviðræðum á næstu tíu til fimmtán árum.