Tvö banaslys á nákvæmlega sama stað á Krýsuvíkurveginum
Fjórir hafa látist á nákvæmlega sama stað á Krýsuvíkurvegi síðustu 20 ár. Í rannsókn kom fram að merkingum um hættulega beygju væri ábótavant. Enn eru engar slíkar merkingar á vegkaflanum og merking gefur til kynna að leiðin sé bein.
Rúmlega þrítugur karlmaður lést í bifhjólaslysi fyrir nítján árum síðan á nákvæmlega sama stað og þrjú ungmenni létust á Krýsuvíkurvegi suðaustur af Hafnarfirði aðfararnótt mánudags. Í niðurstöðu rannsóknarnefndar umferðarslysa (RNU) kemur fram að vegamerkingum á slysstað hafi verið ábótavant árið 2007 þegar vélhjólaslysið átti sér stað.
Merkingum ábótavant
Um það sagði í skýrslu Rannsóknarnefndar: „Rannsóknarnefnd umferðarslysa telur að lækka eigi hámarkshraða á Krýsuvíkurvegi úr 90 km/klst. í 70 km/klst. Vegurinn er með bundnu slitlagi en mjóum vegöxlum og er umhverfi hans varhugavert. Vegmerkingum á slysstaðnum er að mati nefndarinnar ábótavant þar sem ekki er varað við hættulegum beygjum og hæðum.“
Slíkar merkingar er ekki að finna nærri beygjunni í dag, nítján árum síðar, en mælt er með að hámarkshraði sé 70 kílómetra á klukkustund í samræmi við niðurstöður rannsóknarnefndarinnar, og má finna merki þar sem mælt er með …