Ísraelskir hermenn drápu tvo drengi í Al-Mughayyir-þorpinu, norðaustur af Ramallah, í nótt. Annar var 16 ára og hinn 19 ára.
Ísraelsher réðst inn í þorpið og skaut á fólk eftir að til átaka kom vegna sauðaþjófnaðar.
Amin Abu Alia, formaður þorpsráðsins í Al-Mughayyir, sagði að til átaka hefði komið þegar ísraelskir landtökumenn hefðu reynt að stela sauðfé frá tveimur heimilum í þorpinu. Eftir það hefðu ísraelskir hermenn umkringt þorpið og síðan ráðist inn í það. Hann sagði að herinn hefði komið fyrir leyniskyttum sem hefðu skotið á Palestínumenn sem áttu í útistöðum við landtökumenn.
Ísraelski herinn sagði að hann hefði viljað tryggja innganginn í þorpið og sjá til þess að sauðfé sem hefði verið stolið af landtökumönnum væri skilað. Þá hefðu brotist út óeirðir og heimamenn grýtt hermenn.
Palestínski Rauði hálfmáninn sagði að tveir unglingar, 16 og 19 ára, hefðu verið fluttir lífshættulega særðir á spítala. Þar hefðu þeir látist.
Síðustu tæplega þrjú árin hafa 1.105 Palestínumenn verið drepnir af ísraelskum hermönnum og landtökumönnum á Vesturbakkanum, samkvæmt AFP. Á sama tíma hafa 48 Ísraelar verið drepnir af Palestínumönnum, samkvæmt Ísraelsher.