Tónskóli Eddu Borg og Tónlistarskóli FÍH hafa undirritað samning þess efnis að skólarnir muni sameinast frá og með næsta skólaári. Um er að ræða tvo rótgróna tónlistarskóla sem hófu störf á áttunda áratug síðustu aldar.
Kennsla í sameinuðum skóla verður áfram á tveimur starfsstöðum, í Kleifarseli í Breiðholti og í Rauðagerði. Róbert Þórhallsson, skólastjóri Tónlistarskóla FÍH, verður skólastjóri og Edda Borg, stofnandi og skólastjóri Tónskóla Eddu Borg, verður aðstoðarskólastjóri.
„Þessi hugmynd er ekkert ný af nálinni. Við erum búin að vera að ræða þetta svona okkar á milli í nokkur ár og vorum alveg komin í þetta ferli þegar kemur bréf frá Reykjavíkurborg um að tónlistarskólar sem eru með minni nemendafjölda en 150 megi jafnvel ekki búast við þjónustusamningum við Reykjavíkurborg eftir 2027,“ segir Edda Borg um aðdragandann og bætir við að sameiningin komi til með að styrkja starf beggja skóla.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
Innskráning
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.