Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi.
Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar, sjúkraflugvélar, björgunarsveitarmenn, lögregla, sjúkralið og Rauði krossinn tóku þátt í aðgerðum. Hópslysaáætlun var virkjuð á Austurlandi í kjölfar árekstursins. Tveir erlendir ferðamenn voru fluttir alvarlega slasaðir til Reykjavíkur og eru þungt haldnir.
„Aðrir voru í kjölfar slyssins færðir til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Austurlands á Egilsstöðum. Þeir voru útskrifaðir samdægurs. Meiðsli talin minniháttar,“ segir í tilkynningunni.
Samkvæmt sjónarvotti átti slysið sér stað uppi á Jökuldalsheiði þar sem ein bifreið sást utan vegar og önnur á hvolfi. Óljóst sé hvernig slysið bar að, vegurinn hafi verið hálkulaus og almennt gott skyggni.
Hér fyrir neðan má lesa tilkynningu lögreglu í heild sinni:
Tveir erlendir ferðamenn á sjötugsaldri létust í umferðarslysi í gær á þjóðvegi 1 við Háreksstaðakvísl.
Þá voru tveir fluttir alvarlega slasaðir á sjúkrahús með sjúkraflugi til Reykjavíkur, erlendir ferðamenn einnig.
Aðrir voru í kjölfar slyssins færðir til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Austurlands á Egilsstöðum. Þeir voru útskrifaðir samdægurs. Meiðsli talin minniháttar.
Rannsókn á tildrögum slyssins er í höndum lögreglunnar á Austurlandi og Rannsóknarnefndar samgönguslysa.