Eldurinn kviknaði í flutningaskipinu Ocean Melody sem lá við festar til viðgerða í Beihai-skipasmíðastöðinni í hafnarborginni Qindao á norðausturströnd Kína. AP-fréttastofan segir að skipið sigli undir líberískum fána.
Tólf manns af 42 sem voru um borð var komið úr skipinu og fimm eru á sjúkrahúsi í stöðugu ástandi, að sögn CCTV, kínverska ríkisútvarpsins. Eldurinn kviknaði upp úr klukkan ellefu að staðartíma og var eldurinn slökktur á um þremur tímum.
Xi Jinping forseti segist hafa gefið skipanir um björgun á fólki. Li Qiang, forsætisráðherra Kína, segir að fólk sé fast um borð í skipinu.
Fréttin verður uppfærð.