Steve Witkoff, einn helsti erindreki Bandaríkjaforseta, og Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, hittust á fundi í New York í gær þar sem fulltrúar frá Katar miðluðu málum. Þetta er fyrsti fundur fulltrúa ríkjanna frá því að viljayfirlýsing um frið frá því í júní fór út um þúfur.
Nokkrum klukkustundum áður sagðist Donald Trump Bandaríkjaforseti í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna geta gereytt íslamska lýðveldinu ef samningar næðust ekki.
Það virðist ekki mikið nýtt hafa komið fram á fundi Írans og Bandaríkjanna í gær. Witkoff sagðist vona að viðræðurnar reynist uppbyggilegar og talsmaður Írans sagðist hafa ítrekað kröfur um að Bandaríkin láti af árásum.
Það eru nærri sjö mánuðir liðnir frá því að Bandaríkin og Ísrael hófu stríð gegn Íran og þótt ekki sé allsherjarstríð enn í gangi þá er heldur ekki kominn á friður.
Trump gerði viðræður við Íran að umtalsefni í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í gær.
„Ég þarf að taka stóra ákvörðun. Semjum við við Íran þannig að þeir geti endurreist landið og gert það voldugra en nokkru sinni áður? Kannski eitt það voldugasta í Mið-Austurlöndum eða jafnvel heiminum öllum? Eða gereyði ég íslamska lýðveldinu og það hratt, þannig að þeir fái aldrei aftur tækifæri til að drepa og tortíma fólki og löndum? Á ég að steypa þeim í helvíti án nokkurrar vonar um að lifa af og engrar vonar um glæsta framtíð? En ég hef trú á að við gerum samning strax eftir kosningar,“ sagði forsetinn og á þar við þingkosningar í Bandaríkjunum sem fara fram í byrjun nóvember.
Segir ummæli Trumps merki um örvæntingu
Esmail Baghaei, talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, segir ummæli Trumps merki um örvæntingu. „Það er ekki merki um styrk að nýta allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna – stærsta alþjóðlega vettvang heims – í ólögmætar yfirlýsingar, brjóta gegn alþjóðalögum og ganga þvert á diplómatískar venjur.“
Síðustu vikur og mánuði hafa hótanir gengið á víxl og fregnir af árásum á einstaka skip á Hormússundi eru tíðar. Sundið, þar sem um fimmtungur allrar olíu heims fer um á friðartímum, er í raun enn lokað fyrir almennri umferð.
Enda hefur heimsmarkaðsverð olíu meira og minna haldist hátt frá því stríðið hófst, hér að ofan má sjá þróun þess frá byrjun árs 2026.
Þann 2. janúar var verð á tunnu 60,7 dollarar. Í lok febrúar rauk verðið upp en það tók svo dýfu eftir að Bandaríkin og Íran skrifuðu undir viljayfirlýsingu um frið um miðjan júní. En ekkert bólaði á friði, verðið hækkaði aftur og núna kostar tunnan rétt um 100 dollara.
Það hefur áhrif um allan heim þar sem olía er jú enn sá orkugjafi sem knýr áfram mestallar samgöngur, framleiðslu og flutninga á vörum.