Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hættur við að innheimta tuttugu prósenta toll af öllum varningi sem siglir um Hormússund. Þetta er enn ein kúvendingin í málefnum Hormússunds og stríðinu gegn Íran. Innan við sólarhringur er liðinn frá því Trump lýsti því yfir að hann myndi krefjast tollsins af allri umferð um sundið í skiptum fyrir að tryggja öryggi skipa sem sigla þar um.
Nú segist forsetinn tilbúinn að fella niður tollinn gegn því að Arabaríki fjárfesti í Bandaríkjunum. „Ég kann ekki við tolla sem fyrirbæri.“ sagði Trump en bætti við að það væri ósanngjarnt að Bandaríkin sæju um að vernda öll skip sem sigla um sundið.