Hljómleikum púertóríska tónlistarmannsins Bad Bunny í Mílanó á Ítalíu í gærkvöldi var skyndilega aflýst þegar brast á með hagléli.
Uppselt var á tónleika stórstjörnunnar í Ippodromo SNAI La Maura-tónleikahöllinni í Mílanó, sem tekur 80 þúsund gesti.
Þegar um 45 mínútur voru liðnar á tónleikana tók veður að versna og hlé gert á tónleikunum. Tónleikagestir voru fyrst um sinn beðnir að halda kyrru fyrir á meðan veðrið gengi yfir, en fljótlega varð ljóst að svo yrði ekki og var ákveðið að rýma tónleikahöllina.
Tónleikagestir hafa deilt upplifun sinni á samfélagsmiðlum.