Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg þess efnis segir að á meðan á framkvæmdum standi hafi karlar notað gamla búningsklefann á neðri hæð og konur báða útiklefana. Þessir klefar rúmi samtals um sextíu gesti og því þurfi að miða við þann hámarksfjölda í lauginni á meðan ráðstafanir eru í gildi.
Þegar skólasund hefst að nýju 25. ágúst þurfi því tímabundið að breyta opnunartíma Sundhallarinnar á virkum dögum þar til viðgerðum á kvennaklefa ljúki.
Opnunartíminn verði sem hér segir:
Mánudagar: 06:30–10:00 og 14:00–22:00
Þriðjudagar: 06:30–08:30 og 14:00–22:00
Miðvikudagar: 06:30–22:00 (óbreyttur opnunartími)
Fimmtudagar: 06:30–08:30 og 15:00–22:00
Föstudagar: 06:30–10:00 og 15:00–22:00
Lögð sé áhersla á að ljúka framkvæmdum við búningsklefa eins fljótt og kostur er og koma starfsemi Sundhallarinnar aftur í hefðbundið horf. Vonast sé til þess að hægt verði að opna kvennaklefann að nýju á haustmánuðum.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þessar tímabundnu ráðstafanir kunna að valda. Jafnframt er bent á að árskort og aðrar áskriftir gildi í öllum Sundlaugum Reykjavíkur.