Þurfti að halda á­fram að vinna þrátt fyrir hættu­legt á­stand á með­göngu - Vísir

Þurfti að halda á­fram að vinna þrátt fyrir hættu­legt á­stand á með­göngu - Vísir

Þurfti að halda á­fram að vinna þrátt fyrir hættu­legt á­stand á með­göngu - Vísir

Dagbjört varð ófrísk að syni sínum árið 2020 en þrátt fyrir meðgöngueitrun, háan blóðþrýsting, mikinn höfuðverk og sjóntruflanir sá hún sig tilneydda til að halda áfram að vinna vegna þess að heilbrigðistrygging hennar var tengd starfinu og starfsverndað leyfi takmarkað. 

Röð atburða leiddi síðan til þess að hún þurfti að snúa aftur til vinnu skömmu eftir að sonur hennar fæddist, og áður en hún hafði náð sér líkamlega eftir fæðinguna. Hún segir reynsluna hafa gjörbreytt sýn sinni á bandaríska kerfið.

Gengu í hjónaband eftir árskynni

Sagan af því hvernig Dagbjört endaði í Bandaríkjunum á sínum tíma er nokkuð óvenjuleg.

Árið 2013 var hún 19 ára og vann á kaffihúsi í Borgartúni. Þar kynntist hún bandarískri konu að nafni Karen, sem var á ferðalagi á Íslandi. Þær urðu vinkonur og nokkrum mánuðum síðar bauð Karen Dagbjörtu að koma til Washington-fylkis og búa hjá sér yfir sumarið. Dagbjört þáði boðið, hætti í vinnunni og keypti sér flugmiða.

Heima hjá Karen sá hún ljósmynd af ungum manni á ísskápnum og sagði að sér fyndist hann sætur. Maðurinn reyndist vera Ben Barringer, ættingi Karenar, sem starfaði í leyniþjónustu bandaríska sjóhersins. Fjölskylda hans reyndi að koma þeim saman og eftir nokkrar tilraunir hittust þau loks í afmælisveislu. Þau eyddu næstu tveimur vikum saman áður en Dagbjört sneri aftur til Íslands.

Sambandið hélt áfram í gegnum Facebook og Skype og þau urðu fljótt ástfangin og enduðu síðan á því að ganga í hjónaband í Bandaríkjunum árið 2014. Dagbjört flutti í kjölfarið vestur um haf. Hún þurfti síðan að bíða í tíu mánuði eftir atvinnuleyfi en þegar hún fékk loks að vinna hóf hún störf hjá Ikea, fór síðan í snyrtivörugeirann og vann sig hratt upp. Hún starfaði meðal annars hjá Bobbi Brown, Laura Mercier og Charlotte Tilbury áður en hún tók við stjórnunarstarfi hjá Target verslunarkeðjunni.

Dagbjört hafði lengi góða reynslu af lífinu í Bandaríkjunum. Hún byggði þar upp farsælan starfsferil, hafði góðar tekjur og bjó með eiginmanni sínum í rúmgóðu húsi. Hún sá lengi fyrir sér framtíðina þar og upplifði að landið gæfi henni tækifæri sem hún hafði ekki fundið heima á Íslandi.Viðhorf hennar breyttist þegar hún varð ófrísk árið 2020.Aðsend

Fór í vinnuna með ljósblossa fyrir augunum

Árið 2020 varð Dagbjört ófrísk. Á þeim tíma var hún með með heilbrigðistryggingu í gegnum vinnuna hjá Target. Ben, eiginmaður hennar var einnig tryggður í gegnum hana, þar sem vinnuveitandi hans bauð ekki sambærilega tryggingu.

Að sögn Dagbjartar voru tæplega þúsund dollarar dregnir mánaðarlega af launum hennar vegna tryggingar þeirra beggja, en hún segir trygginguna þó aðeins hafa greitt hluta heilbrigðiskostnaðarins. Mikilvægast hafi verið að hún tryggði aðgang að þjónustu.

„Við vorum með of háar tekjur til að fá hjálp,“ segir hún. 

„En ef ég hefði misst vinnuna og við þurft að kaupa einkatryggingu hefði hún verið svo dýr að við hefðum misst húsið. Þannig að við vorum svona rekin út í horn.“ 

Þegar Dagbjört greindist síðan með meðgöngueitrun á 19. viku meðgöngunnar vildi læknir hennar að hún hætti að vinna og færi í rúmlegu. Það var að sögn Dagbjartar þó ekki raunhæfur kostur. Hún átti, að eigin sögn, rétt á tólf vikna starfsvernduðu leyfi, en hver hálfur dagur eða nokkrar klukkustundir sem hún þurfti frá vinnu vegna læknisheimsókna gengu á þann tíma. Hefði hún tekið allt leyfið strax þegar veikindin komu upp hefði það klárast áður en meðgöngunni lauk.

Hún hélt því áfram að mæta í vinnuna, með blóðþrýstingsmæli með sér, þrátt fyrir höfuðverk og sjóntruflanir. Nokkrum sinnum þurfti að flytja hana með sjúkrabíl frá vinnustaðnum á sjúkrahús.

Ég bara trúði ekki að fólk gæti leyft mér að fara í vinnuna, með blóðþrýsting sem var stórhættulegur, sjá ljós blossa fyrir augunum og vera með dúndrandi hausverk í marga mánuði.

60 tíma vinnuvika

Þegar Dagbjört var komin um 34 vikur á leið versnaði ástand hennar skyndilega. Hún fékk gríðarlegan höfuðverk, sjónin brást og hún kastaði upp. Á sjúkrahúsi mældist blóðþrýstingurinn 195/168.

Sonur hennar fæddist þegar hún var komin 34 vikur og fimm daga á leið og þurfti aðstoð við öndun og dvöl á vökudeild. Hann var þar í um tvær vikur og þurfti áfram náið eftirlit eftir að heim var komið. 

Sonur Dagbjartar og Ben fæddist fyrir tímann, við tæplega 33 vikna meðgöngu.Aðsend

Dagbjört lýsir því hvernig hún þurfti að fylgjast náið með syni sínum á hverri nóttu.

„Ég lá uppi í rúmi og horfði á súrefnismettunina hans vakandi á nóttunni. Ég þurfti að mæla niður í hvert einasta gramm hvað hann borðaði og skrá allt.“

Á sama tíma var eigin líkami hennar enn að jafna sig eftir fæðinguna og hún glímdi áfram við meðgöngueitrun eftir barnsburð. Skömmu síðar var hún síðan komin aftur til vinnu. Hún lýsir því að hafa verið í bleyju vegna líkamlegs ástands eftir fæðinguna og með brjóstabólgu.

Tveimur mánuðum eftir fæðinguna missti eiginmaður hennar vinnuna þegar fyrirtækið sem hann starfaði hjá fór á hausinn í Covid-faraldrinum.

Dagbjört varð fyrirvinna fjölskyldunnar og segir að hún hafi unnið 50 til 60 tíma á viku.

„Ég var að reyna að vinna fyrir okkur, þekkti barnið mitt ekki neitt og sá hann aldrei. Ég man eiginlega eftir þessu í þoku.“

Hún segir þessa reynslu hafa haft mikil áhrif á tengsl hennar við soninn. Hún hafi verið svo lítið með honum að hún náði varla að kynnast honum, auk þess sem allur sá tími sem þau áttu saman einkenndist af ótta, þreytu og áhyggjum af heilsu hans.

Andlega fór Dagbjört einnig illa út úr tímanum eftir fæðinguna. Sex vikum eftir barnsburð lýsti hún fyrir lækni miklum dofa, skorti á tengingu við son sinn og stöðugum ágengum hugsunum um að eitthvað slæmt myndi koma fyrir hann. Hún segist meðal annars hafa séð fyrir sér slys þegar hún gekk fram hjá stiga.

Viðbrögð læknisins, að hennar sögn, voru að benda á að hún hefði sjálf viljað eignast barn.

„I am so sorry“

Dagbjört leitaði síðar eftir sálfræðiþjónustu í gegnum tryggingarnar en segir tryggingafélagið hafa hafnað greiðslu vegna þess hvernig læknirinn hafði orðað sjúkraskrána hennar.

„Ég var ekki að ná að tengjast stráknum mínum neitt og það er ótrúlega sárt og erfitt að hugsa til þess. Ég var rosalega dofin og fann ekki fyrir neinum tilfinningum, en var stöðugt með hugsanir um að hann myndi slasast.“

Þegar hún horfir til baka segist hún sjá að hún hafi verið að glíma við fæðingarþunglyndi og fæðingarkvíða. Á þeim tíma hafi hún hins vegar verið of föst í daglegu basli til að átta sig almennilega á stöðunni.

Hún vill þó gera skýran greinarmun á bandaríska kerfinu og fólkinu sem starfar innan þess. Hún segir lækna, ljósmæður og annað starfsfólk sem annaðist hana á meðgöngunni almennt upp til hópa hafa verið indælisfólk, sem hafi vitað af aðstæðum hennar og sýnt henni mikla samúð. Sérfræðilæknirinn hennar hafi til að mynda sest hjá henni þegar hún útskýrði hvers vegna hún gæti ekki farið í rúmlegu og einfaldlega sagt: „I'm so sorry.“

Ég held að ég hafi heyrt „I am so sorry“ svona hundrað sinnum á meðan ég var ólétt.

Féllu á milli þilja

Samanburðurinn við Ísland er Dagbjörtu hugleikinn. Hún segist ekki vilja halda því fram að íslenska kerfið sé fullkomið eða að auðvelt sé að lifa á Íslandi. Munurinn, að hennar mati, snýr fyrst og fremst að örygginu þegar eitthvað óvænt kemur upp.

Þetta gerðist allt af því að við féllum í þennan millitekjuhóp. Það er talað um „the middle class gap“ hérna úti.

Dagbjört segir að íslenskur bakgrunnur hennar hafi jafnvel gert henni erfiðara fyrir að átta sig á stöðunni í upphafi. Hún hafi tekið félagslegu öryggi sem sjálfsögðum hlut og átt erfitt með að trúa að valkostirnir væru í raun jafn takmarkaðir og þeir reyndust vera.

Sem fyrr segir starfaði Dagbjört lengi sem stjórnandi hjá Target verslunarkeðjunni, sem er stór vinnuveitandi í Bandaríkjunum. Þar hafi henni verið gert að fylgjast náið með vinnustundum starfsmanna svo þeir færu ekki yfir mörk sem gætu veitt þeim rétt á ákveðnum fríðindum, þar á meðal heilbrigðistryggingu. Hún bendir jafnframt á að ekki allir starfsmenn eigi kost á þeim tólf vikum sem hún sjálf gat nýtt.

Dagbjört segir Bandaríkin hafa gefið sér mikla starfsreynslu, tækifæri og góð ár. Það sem hafi breyst sé fremur sýn hennar á hvað skipti mestu máli þegar lífið fari ekki samkvæmt áætlun.Aðsend

„Ég var yfirmaður og mér var harðbannað að gefa fólki meira en ákveðinn fjölda tíma af því þá gæti það átt rétt á „benefits“. Ég fékk tölvupósta um að skera niður tímana hjá starfsmönnum áður en þeir myndu ná þeim rétti.“

Viðbrögðin bæði jákvæð og neikvæð

Dagbjört segir að þegar Bandaríkjamenn heyri hana bera saman bandaríska og íslenska velferðarkerfið séu fyrstu viðbrögðin stundum að spyrja hvers vegna hún hafi yfirhöfuð flutt til Bandaríkjanna.

„En ég flutti ekki til Bandaríkjanna með það plan að eignast barn og lenda í þessu, enda var ég bara tvítug.“

Fyrr í þessum mánuði birti hún færslu á TikTok þar sem hún sagði frá meðgöngunni og reynslu sinni af bandaríska kerfinu og fór myndskeiðið í mikla dreifingu. Hún segir yfir tvö þúsund athugasemdir hafa borist og að samkvæmt tölfræði miðilsins hafi langstærstur hluti áhorfenda verið Bandaríkjamenn.

@absolutelynot19 People keep asking why I’m moving back to Iceland, and there are many reasons for it. Here is one of them. #pregnancy #preemie #preeclampsia #laboranddelivery #iceland ♬ original sound - Dagbjört

Hún segir það hafa verið sérstaklega erfitt að lesa frásagnir bandarískra kvenna sem þurftu að snúa aftur til vinnu örfáum dögum eftir fæðingu, jafnvel á meðan fyrirburar þeirra voru enn á nýburagjörgæslu.

„Þær héldu að þetta væri bara eðlilegt af því þetta hafði komið fyrir þær,“ segir Dagbjört og bendir á að vandinn liggi fyrst og fremst í kerfi þar sem aðgangur að heilbrigðisþjónustu, atvinnuöryggi og möguleiki á að vera frá vinnu vegna veikinda eða barneigna geta verið nátengd.

Hún fékk þó einnig gagnrýni frá fólki sem taldi hana draga of dökka mynd af bandaríska kerfinu. Sumir bentu á að þeirra eigin reynsla hefði verið allt önnur og að aðstæður væru mismunandi eftir vinnuveitendum, tryggingum og fylkjum. Aðrir gengu lengra og spurðu hvers vegna hún teldi sig eiga að fá heilbrigðisþjónustu án þess að „vinna fyrir henni“.

Sumir gagnrýndu hana fyrir að segja að hún skildi ekki hvernig Bandaríkjamenn „leyfðu“ slíku heilbrigðis- og vinnumarkaðskerfi að viðgangast. 

Dagbjört svarar því með því að benda á að milljónir Bandaríkjamanna kjósi stjórnmálamenn sem styðji kerfið. Hún gagnrýnir einnig fólk sem er ósátt við kerfið en mætir ekki á kjörstað og telur að pólitískt sinnuleysi eigi þátt í því að viðhalda stöðunni.

Hún hafnar þeirri hugmynd að kerfið sé of stórt til að hægt sé að breyta því og vísar meðal annars til Frakka, Íra og Íslendinga sem dæmi um þjóðir sem hafi þrýst á stjórnvöld til breytinga.

Aftur heim til Íslands

Síðustu ár hafa fleiri áföll bæst við hjá fjölskyldunni. Þegar sonur Dagbjartar var tíu mánaða kviknaði í húsinu þeirra og það þurfti að endurbyggja. Síðar varð aftur stórt tjón þegar skólp flæddi um húsið og fór undir gólf og inn í veggi. Sonur þeirra hefur jafnframt glímt við þroskaseinkun og Dagbjört segir fjölskylduna hafa lent á löngum biðlistum eftir greiningu. Eftir að hún skipti um vinnu og þar með tryggingafélag hafi ferlið flækst enn frekar. Hjónin ákváðu að lokum að greiða sjálf fyrir þroska-, iðju- og talþjálfun sonar síns, sem Dagbjört segir hafa kostað meira á mánuði en húsnæðislánið þeirra.

Þau hjónin tóku ákvörðun um að flytja búferlum til Íslands og settu í kjölfarið húsið sitt á sölu. Þau koma til landsins í næsta mánuði og ætla að koma sér fyrir hér.

Dagbjört tekur fram að Bandaríkin hafi gefið henni tækifæri á sínum tíma, starfsframa og reynslu sem hún hefði ekki viljað missa af. Síðustu fimm ár hafi þó breytt því hvernig hún vill forgangsraða hlutunum.

Hún vill vera nær fjölskyldu sinni og hún vill að sonur hennar fái að kynnast ömmu og afa, fara í leikskóla, eignast vini og alast upp við minna álag.

„Ég er ekkert að búast við að allt verði fullkomið á Íslandi. En mig langar bara að lifa rólegra. Allir þessir stóru draumar um þetta stóra líf eru ekki inni í hausnum á mér lengur.“

#halda #vinna #áfram #þrátt #þurfti


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262927526d/thurfti-ad-halda-afram-ad-vinna-thratt-fyrir-haettulegt-astand-a-medgongu

📰 Aðrar fréttir

Ætla að taka samninga við nemendafélög til skoðunar
📅 13.10.2026 👁️ 1
Ætla að taka samninga við nemendafélög til skoðunar
Ölgerðin hyggst taka styrktarsamninga við nemendafélög í háskólum sérstaklega til skoðunar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu í kjölfar u...
Germany puts Ukrainian on trial accused of blowing up Nord Stream pipelines
📅 13.10.2026 👁️ 1
Germany puts Ukrainian on trial accused of blowing up Nord Stream pipelines
Four years after the attacks, Serhii K will appear in court accused of a plot to destroy Russia's gas pipelines to Germany.
Segja hálfa milljón hafa tekið þátt - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
Segja hálfa milljón hafa tekið þátt - Vísir
Le Monde greinir frá því að hvatt sé til þátttöku í víðtækari mótmælum laugardaginn 17. október. Ólíkt mati yfirvalda segja nemendasamtökin þátttöku h...
Royal Mail losing 400 postal workers a week, says union
📅 13.10.2026 👁️ 1
Royal Mail losing 400 postal workers a week, says union
The CWU says more posties are leaving since a new delivery system was brought in, that it claims is not working in hundreds of offices.
Fékk bætur eftir að eiginkonan skar af honum skaufann – Ætlar að nota féð til að giftast henni aftur
📅 13.10.2026 👁️ 2
Fékk bætur eftir að eiginkonan skar af honum skaufann – Ætlar að nota féð til að giftast henni aftur
Brasilísk kona skar typpið af eiginmanni sínum eftir að hún komst að því að hann hafði verið henni ótrúr. Hjónin skildu og hann fékk fébætur. Nú ætlar...
Hring­veginum lokað frá Markar­fljóti til Ör­æfa - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 2
Hring­veginum lokað frá Markar­fljóti til Ör­æfa - Vísir
Lokunin gildir frá Heimalandi við Markarfljót og að Fagurhólsmýri í Öræfum. Fram kemur á vef Vegagerðarinnar að um svokallaða mjúka lokun sé að ræða o...
Lokun á Hringvegi vegna óveðurs og sjór gæti gengið á land
📅 13.10.2026 👁️ 2
Lokun á Hringvegi vegna óveðurs og sjór gæti gengið á land
Hringveginum verður lokað að hluta milli klukkan 5:00 og 9:00 í fyrramálið á Suður- og Suðausturlandi vegna óveðurs.Á vef Vegagerðarinnar segir að ann...
Dánaraðstoð orðin 4% af öllum dauðsföllum í Belgíu
📅 13.10.2026 👁️ 2
Dánaraðstoð orðin 4% af öllum dauðsföllum í Belgíu
Um 4% dauðsfalla í Belgíu í fyrra voru með dánaraðstoð. Hlutfallið hefur tvöfaldast frá árinu 2020, að því er fram kemur í skýrslu stofnunar um mat og...
Hlýtur 40 ára fangelsisdóm fyrir morðið á Tupac Shakur
📅 13.10.2026 👁️ 2
Hlýtur 40 ára fangelsisdóm fyrir morðið á Tupac Shakur
Duane „Keffe D“ Davis hefur hlotið að minnsta kosti 40 ára fangelsisdóm fyrir að hafa fyrirskipað morðið á rapparanum Tupac Shakur. Davis, sem er 63 á...
Kröfur sem ein­stak­lingum er ómögu­legt að upp­fylla - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Kröfur sem ein­stak­lingum er ómögu­legt að upp­fylla - Vísir
Kennararnir Rakel Sigurgeirsdóttir og Sigurður Borghildarson voru í viðtali í Bítinu í morgun þar sem þau fóru yfir málið. Þar kom fram að starfsmennt...
Saka Ölgerðina um að misnota markaðsráðandi stöðu - „Þú keppir ekkert við þetta“
📅 13.10.2026 👁️ 3
Saka Ölgerðina um að misnota markaðsráðandi stöðu - „Þú keppir ekkert við þetta“
Forsvarsmenn handverksbrugghúsa og smærri innflutningsaðila saka Ölgerðina um að misnota markaðsráðandi stöðu, bæði hvað varðar sölu áfengis og annarr...
Framhaldsskólamótmæli halda áfram í Frakklandi
📅 13.10.2026 👁️ 3
Framhaldsskólamótmæli halda áfram í Frakklandi
Um 200 þúsund manns tóku þátt í mótmælum til stuðnings bættum kjörum framhaldsskólanema í Frakklandi í dag. Harka tók að færast í leikinn síðdegis og ...
„Þetta er fyrsta almennilega vetrarveðrið hjá okkur“
📅 13.10.2026 👁️ 3
„Þetta er fyrsta almennilega vetrarveðrið hjá okkur“
Norðanstormur skellur á landinu á morgun og verða gular og appelsínugular viðvaranir víða í gildi. Rætt var við Birtu Líf Kristinsdóttur, veðurfræðing...
Zelensky and Burnham to meet in Downing Street
📅 13.10.2026 👁️ 1
Zelensky and Burnham to meet in Downing Street
The prime minister is calling for partners to step up support for Ukraine following Trump's criticism of Zelensky.
Family pays tribute to 'warm and engaging' man killed in tiger attack
📅 13.10.2026 👁️ 3
Family pays tribute to 'warm and engaging' man killed in tiger attack
William Chapman was attacked by the tiger after he entered its pen at Yorkshire Wildlife Park.
Skipt um glugga á einu frægasta glerþaki landsins
📅 13.10.2026 👁️ 3
Skipt um glugga á einu frægasta glerþaki landsins
Iðnaðarmenn hafa unnið hörðum höndum síðustu vikur og mánuði við verkið, sem er umfangsmikið og vandasamt enda er þakið oft nefnt sem eitt af frægustu...
Saudi employee charged with planting recording device at OpenAI office
📅 13.10.2026 👁️ 3
Saudi employee charged with planting recording device at OpenAI office
Prosecutors say the device, wrapped in toilet paper, was found inserted in a USB port on the back of a TV in an executive conference room.
Leó páfi með lungnakrabbamein
📅 13.10.2026 👁️ 3
Leó páfi með lungnakrabbamein
Leó páfi fjórtándi gekkst undir skurðaðgerð á lunga fyrr í dag til að fjarlægja krabbamein. Meinið hafði fundist við reglubundna læknisskoðun, samkvæm...
Leita að gulli og silfri skammt frá Reykjavík – Nýjar rannsóknir vekja vonir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Leita að gulli og silfri skammt frá Reykjavík – Nýjar rannsóknir vekja vonir
Borunum til gullleitar í Þormóðsdal er lokið í bili. Fyrirtækið Aurania Resources segir rannsóknirnar vekja vonir.DV greindi frá því þann 9. september...
Páfinn greindist með lungna­krabba­mein - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Páfinn greindist með lungna­krabba­mein - Vísir
Fyrr í dag var greint frá því að aðgerðin hefði gengið að óskum en þá hafði ekki verið upplýst hvort hnútur sem fannst í lunga páfa væri illkynja. Í y...
Nálgun varaseðlabankastjóra „sérstök, svo ekki sé meira sagt“
📅 13.10.2026 👁️ 3
Nálgun varaseðlabankastjóra „sérstök, svo ekki sé meira sagt“
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra er gagnrýnin á ummæli Þórarins G. Péturssonar varaseðlabankastjóra sem hann lét falla í Spursmálum Morgun...
Vikan lengdist og aug­lýsinga­hlé urðu tíðari - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Vikan lengdist og aug­lýsinga­hlé urðu tíðari - Vísir
Þetta kemur fram í svari Stefáns Eiríkssonar útvarpsstjóra við fyrirspurn Vísis um lengingu Vikunnar og auglýsingahlé í þættinum. Stefán segir auglýsi...
Ísland er meðal sextán Evrópuríkja þar sem stærstu skipulögðu glæpasamtök Brasilíu eru talin starfa
📅 13.10.2026 👁️ 3
Ísland er meðal sextán Evrópuríkja þar sem stærstu skipulögðu glæpasamtök Brasilíu eru talin starfa
Ísland er meðal sextán Evrópuríkja þar sem stærstu skipulögðu glæpasamtök Brasilíu eru talin starfa. Kókaíninnflutningur til álfunnar hefur margfaldas...
Fjöru­tíu ár fyrir morðið á Tupac - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Fjöru­tíu ár fyrir morðið á Tupac - Vísir
Skotið var á Shakur úr bíl í Las Vegas 7. september 1996. Hann var 25 ára og einn áhrifamesti rappari heims þegar hann lést. Kviðdómur sakfelldi Davis...
Heppin móðir á Suður­landi vann 42 milljónir - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Heppin móðir á Suður­landi vann 42 milljónir - Vísir
Samkvæmt tilkynningu frá HHÍ gaf móðir konunnar henni miðann þegar hún var barn og hún hefur átt hann alla tíð síðan. Hún hafði raunar sagt móður sinn...
Hvetur verka­lýðs­hreyfinguna til sam­stöðu - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Hvetur verka­lýðs­hreyfinguna til sam­stöðu - Vísir
„Ég held að allir aðilar sem komu að þessum kjarasamningum geti verið stoltir af niðurstöðunni. Forsvarsmenn Breiðfylkingarinnar eru með stór mál inni...
„Ég vel þig núna, alltaf og enn­þá“ - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
„Ég vel þig núna, alltaf og enn­þá“ - Vísir
Eva Dögg er 42 ára listrænn stjórnandi, hönnuður og frumkvöðull og stofnaði fyrirtækin L’Atelier Alba, The Face Ritual Method og RVK Ritual. Stefán Da...
Félagslegar íbúðir nýttar til afbrota og börnin misnotuð kynferðislega
📅 13.10.2026 👁️ 3
Félagslegar íbúðir nýttar til afbrota og börnin misnotuð kynferðislega
Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður hefur greint frá kerfisbundnu ofbeldi og misnotkun kvenna í viðkvæmri stöðu, t.d. með andlegar skerðingar, af há...
Gríðarleg tækifæri í innviðagjaldi
📅 13.10.2026 👁️ 3
Gríðarleg tækifæri í innviðagjaldi
Forsætisráðherra segist sjá gríðarlega spennandi tækifæri fyrir áfangastaðinn Ísland í fyrirhuguðu innviða- og náttúrugjaldi. Hún segir fleiri staði e...
Framkvæmdastjóri Bjarkar hættir störfum
📅 13.10.2026 👁️ 3
Framkvæmdastjóri Bjarkar hættir störfum
Hilmar Ingimundarson, framkvæmdastjóri fimleikafélagsins Bjarkar, hefur sagt starfi sínu lausu. Þetta tilkynnti hann foreldrum fyrir stuttu í gegnum a...
Að­gerð páfa gekk vel - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Að­gerð páfa gekk vel - Vísir
Páfi, sem er 71 árs, gekkst undir aðgerðina á Gemelli-sjúkrahúsinu í Róm í dag. Hnúturinn fannst við reglulega læknisskoðun. „Aðgerðinni lauk farsælle...
Segir meðleikara sinn úr Band of Brothers hafa lagt sig í einelti
📅 13.10.2026 👁️ 3
Segir meðleikara sinn úr Band of Brothers hafa lagt sig í einelti
Bandaríska stuttþáttaröðin Band of Brothers kom út árið 2001, gerð af Steven Spielberg og Tom Hanks eftir samnefndri bók sagnfræðingsins Stephen E. Am...
Skuldar ekkert - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 3
Skuldar ekkert - Vísir
„Það passar,“ segir Tryggvi Másson framkvæmdastjóri flokksins í samtali við fréttastofu. Flokkurinn hafi verið með veð í húsnæðinu Valhöll að Háaleiti...
Brýning Rubios
📅 13.10.2026 👁️ 3
Brýning Rubios
Brýning Rubios Fréttin13. október 2026Björn Bjarnason, Erlent, StjórnmálLeave a Comment Marco Rubio við Akrópólis. Björn Bjarnason skrifar: Í stað þes...
Hendur nemendafélaga, útihátíða og KSÍ bundnar
📅 13.10.2026 👁️ 3
Hendur nemendafélaga, útihátíða og KSÍ bundnar
Samkeppniseftirlitið framkvæmdi húsleit hjá Ölgerðinni á föstudaginn, vegna gruns um að fyrirtækið hefði gerst sekt um misnotkun á markaðsráðandi stöð...
Dóra Sif Tynes: Bókun 35 snýst ekki um Brussel – innanlandsmál sem snýst um réttindi okkar
📅 13.10.2026 👁️ 3
Dóra Sif Tynes: Bókun 35 snýst ekki um Brussel – innanlandsmál sem snýst um réttindi okkar
Þeir sem halda að eitthvert fullveldisafsal felist í því að innleiða bókun 35 virðast misskilja málið
Farþegar skemmtiferðaskipa skila meirihluta erlendrar kortaveltu á Ísafirði
📅 13.10.2026 👁️ 3
Farþegar skemmtiferðaskipa skila meirihluta erlendrar kortaveltu á Ísafirði
Greining Teya byggir á kortaviðskiptum í átta hafnarbæjum síðastliðið sumar. Á Ísafirði voru að jafnaði 328 erlend greiðslukort notuð á dögum þegar sk...
Úkraínumaður handtekinn fyrir að leggja á ráðin um fjöldastunguárás í Póllandi
📅 13.10.2026 👁️ 3
Úkraínumaður handtekinn fyrir að leggja á ráðin um fjöldastunguárás í Póllandi
Úkraínumaður handtekinn fyrir að leggja á ráðin um fjöldastunguárás í Póllandi Fréttin13. október 2026ErlentLeave a Comment Úkraínskur nemandi hefur v...
Trump ousts Kimberly Guilfoyle as US ambassador to Greece after corruption allegations
📅 13.10.2026 👁️ 3
Trump ousts Kimberly Guilfoyle as US ambassador to Greece after corruption allegations
Guilfoyle the allegations of improper conduct are "false" and being ambassador was the "honour of a lifetime".
Duane "Keffe D" Davis sentenced to 40 years for rapper Tupac Shakur's murder
📅 13.10.2026 👁️ 3
Duane "Keffe D" Davis sentenced to 40 years for rapper Tupac Shakur's murder
The sentence marks an end to the mystery around Tupac's cold case, which has intrigued hip-hop fans for nearly 30 years.
Veðurspá fyrir morgundaginn versnar
📅 13.10.2026 👁️ 3
Veðurspá fyrir morgundaginn versnar
Von er á vonskuveðri um nær allt landið á morgun þegar djúp og kröpp lægð gengur yfir. Veðurstofan hefur bætt við appelsínugulri veðurviðvörun á Suður...
Rekstur nýju björgunarskipanna afar krefjandi fyrir björgunarsveitir Landsbjargar
📅 13.10.2026 👁️ 3
Rekstur nýju björgunarskipanna afar krefjandi fyrir björgunarsveitir Landsbjargar
Eftir úttekt um endurnýjun björgunarskipa Landsbjargar vorið 2019 var tveimur árum síðar gert samkomulag við ríkið um helmings fjármögnun nýrra björgu...
'If we don't scream, they won't listen to us': Student protests continue in Paris
📅 13.10.2026 👁️ 3
'If we don't scream, they won't listen to us': Student protests continue in Paris
Student protesters in France have told the BBC's James Waterhouse that they will continue to take action until change has been made. The protests have...
BBC sakað um ritskoðun fyrir að afmá slagorð um trans konur
📅 13.10.2026 👁️ 4
BBC sakað um ritskoðun fyrir að afmá slagorð um trans konur
Breska ríkisútvarpið BBC er sakað um ritskoðun eftir að slagorð til stuðnings transkonum var afmáð með stafrænni myndvinnslu af bol sem leikkonan Beth...
Styður Repúblikana með tugum milljarða - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 4
Styður Repúblikana með tugum milljarða - Vísir
Umræddir frambjóðendur eru þau Thomas H. Kean Jr. og Miller-Meeks en þau sitja bæði í fulltrúadeildinni fyrir kjósendur í New Jersy annars vegar og Io...
Fór úr bílnum og hljóp undan lög­reglu - Vísir
📅 13.10.2026 👁️ 4
Fór úr bílnum og hljóp undan lög­reglu - Vísir
Að því er fram kemur í dagbók lögreglu náðist maðurinn skömmu síðar og reyndist þá vera réttindalaus og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Sömuleiðis ...
Vara við flóðum – Flætt gæti upp á bryggjur
📅 13.10.2026 👁️ 4
Vara við flóðum – Flætt gæti upp á bryggjur
Landhelgisgæsla Íslands varar við að búast megi við mjög hárri sjávarstöðu í óveðrinu á morgun vegna lágs loftþrýstings. Þetta geti valdið flóðum.„Mjö...
Ævintýralegur lögmannskostnaður í Reykholtsmálinu - „Hver elskar ekki þegar 4 daga frelsissvipting borgar sig?“
📅 13.10.2026 👁️ 4
Ævintýralegur lögmannskostnaður í Reykholtsmálinu - „Hver elskar ekki þegar 4 daga frelsissvipting borgar sig?“
Dómur í hinu svokallaða Reykholtsmáli hefur nú verið birtur og kennir þar margra grasa. Málið, sem hefur ítarlega verið fjallað um í fjölmiðlum, varða...
Cornell cancels fraternity parties over sexual assault case
📅 13.10.2026 👁️ 3
Cornell cancels fraternity parties over sexual assault case
The school has faced an uproar over how it handled assault allegations brought by a woman known as Jane Doe.
Cornell-háskóli aflýsir öllum bræðralagsskemmtunum
📅 13.10.2026 👁️ 4
Cornell-háskóli aflýsir öllum bræðralagsskemmtunum
Stjórnendur í Cornell-háskóla hafa ákveðið að aflýsa öllum viðburðum og skemmtunum í húsakynnum bræðralaga í skólanum út skólaárið sem lýkur næsta vor...