Lokun Hringvegarins gildir frá Heimalandi við Markarfljót og að Fagurhólsmýri í Öræfum. Fram kemur á vef Vegagerðarinnar að um svokallaða mjúka lokun sé að ræða og að mannaðir lokunarpóstar verði á svæðinu.
Óvissustig verður í gildi frá og með í fyrramálið á vegum um land allt. Ökumenn eru varaðir við því að vegir gætu lokað með skömmum fyrirvara í öllum landshlutum nema suðvesturhorninu og á Austurlandi. Það er þó ekki að segja að það sé tilefni til að draga sólbekkinn fram þar.
Fyrr í kvöld uppfærði Veðurstofan viðvaranir sínar og hafa nú verið gefnar út appelsínugular viðvaranir fyrir Suðurland og Breiðafjörð auk Vestfjarða og Stranda og Norðurlands vestra. Spáð er hvassviðri fyrir norðan og vestan og síðar norðanstórhríð.
Gul viðvörun er áfram í gildi á höfuðborgarsvæðinu í morgunsárið.
Veðurviðvaranir í gildi í fyrramálið og annað kvöld:
Óveðursvaktin hefst í fyrramálið
Appelsínugul viðvörun tekur fyrst gildi á Suðurlandi klukkan fimm í nótt og gildir til klukkan tíu. Mesta hvassviðrið mjakast norður yfir landið eftir því sem á daginn líður. Appelsínugul viðvörun tekur gildi á Breiðafirði um hádegið og færist svo vestur á firði seinnipartinn.
Annað kvöld er svo spáð vonskuveðri á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra með norðan stórhríð, hávaðaroki og þungri snjókomu.
Vísir verður með vakt snemma í fyrramálið þar sem verður hægt að fylgjast með öllum vendingum.