Júlíus Rúnar Þórðarson hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga konu og nýta sér andlega fötlun hennar, áfengissýki og þá yfirburðastöðu sem hann hafði gagnvart henni.
Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Norðurlands vestra 10. júlí.
Júlíus starfaði sem verktaki við akstur á vegum sveitarfélagsins Skagafjarðar og sá meðal annars um að aka konunni til og frá dagvistun og færa henni mat.
Konan var skjólstæðingur stuðnings- og stoðþjónustu sveitarfélagsins og þurfti mikinn stuðning í daglegu lífi.
Samkvæmt ákæru hafði Júlíus samræði við konuna í að minnsta kosti eitt skipti árið 2023. Hann var sakfelldur fyrir að hafa notfært sér yfirburði sína og aðstöðumun gagnvart henni, meðal annars með því að lofa henni áfengi gegn kynlífi.
Sagðist ekki hafa getað sagt nei
Konan greindi starfsmanni félagsþjónustunnar frá því í október 2023 að Júlíus hefði keypt fyrir hana áfengi og ætlaðist til þess að hún greiddi honum fyrir greiðann með kynlífi.
Brotaþoli sagði síðar fyrir dómi að henni hefði fundist hún ekki geta sagt nei. Hún hefði verið háð Júlíusi um þjónustu og óttast að hann hætti að aðstoða hana ef hún neitaði honum.
Fram kom að konan glímdi við alvarlega minnisskerðingu, ætti erfitt með að setja öðrum mörk og væri háð stuðningi annarra. Dómurinn taldi að Júlíusi ætti að vera ljóst að hún glímdi við andlega fötlun.
DNA-sýni reyndust úr Júlíusi
Júlíus neitaði því upphaflega við yfirheyrslur lögreglu að hafa haft kynmök við konuna. Sæðisfrumur með hans DNA fundust aftur á móti í fimm sýnum sem tekin voru af sængurfatnaði á heimili hennar.
Þegar niðurstöðurnar voru bornar undir hann kvaðst hann ekki geta útskýrt hvernig sýnin hefðu komist þangað.
Fyrir dómi viðurkenndi hann síðan að hafa haft samræði við konuna. Hann sagði fyrst að það hefði gerst einu sinni en kvað síðar mögulegt að skiptin hefðu verið þrjú.
Dómurinn taldi breytilegan framburð hans draga úr trúverðugleika hans en framburður konunnar hefði verið stöðugur um meginatriði málsins.
Braut gróflega gegn kynfrelsi hennar
Við ákvörðun refsingar var litið til þess að Júlíus hefði brotið gróflega gegn kynfrelsi konunnar og nýtt sér yfirburðastöðu sína og veikleika hennar. Hann var ekki talinn eiga sér neinar málsbætur.
Júlíusi var gert að greiða konunni tvær milljónir króna í miskabætur auk vaxta. Þá þarf hann að greiða rúmar 7,7 milljónir króna í sakarkostnað.