Spánarmeistarar Barcelona luku keppni með fullt hús stiga á toppi efstu deildar Spánar í handbolta eftir stórsigur gegn La Rioja, sem er í öðru sætinu, í lokaumferðinni á útivelli í dag.
Leiknum lauk með 41:28-sigri Barcelona en Viktor Gísli Hallgrímsson varði þrjú skot í marki spænska stórliðsins.
Barcelona endaði með 60 stig af 60 mögulegum en liðið vann alla 30 leiki sína á tímabilinu.