Breytingartillaga Diljár Mistar Einarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um að seinka þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu var hafnað.
Lagði Diljá til að þjóðaratkvæðagreiðslan myndi frekar fram þann 17. október í stað 29. ágúst næstkomandi.
35 kusu gegn og 18 á með, en 4 þingmenn tóku ekki afstöðu.
Í umræðum um breytingartillöguna bentu þingmenn minnihlutans á að ríkisstjórnin hefði ekki getað fært sannfærandi rök fyrir því afhverju núverandi dagsetning hefði orðið fyrir valinu.
Á að hefja á aðildarviðræður eða ganga til viðræðna?
Þá var tillögu minnihlutans um að breyta orðalagi þeirrar spurningar sem lögð verður fyrir í þjóðaratkvæðagreiðslunni ekki samþykkt.
Minnihlutinn fór fram á að í stað spurningarinnar „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ yrði spurt „Á Ísland að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið?.“
Þar kusu 35 gegn breytingu og 22 með.
Vilja ekki tilgreina samningsmarkmið
Þá fór minnihlutinn einnig fram á að samningsmarkmið og skilyrði íslands í mögulegum samningaviðræðum við ESB yrðu tilgreind fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna.
Sú tillaga var líka felld með 35 gegn 22 atkvæðum.